26 Pixar myndir frá verstu til bestu

Teiknimyndafyrirtækið Pixar hefur verið við lýði í næstum þrjá áratugi, en bráðum 28 ár eru frá því fyrsta myndin í fullri lengd kom frá fyrirtækinu. Vefritið Men´s Health raðaði tuttugu og sex myndum í röð eftir gæðum og má sjá listann hér fyrir neðan. [Ath. listinn var gerður áður en Elemental kom út í fyrrasumar.]

Í formála segir Men´s Health að hægt sé að skipta árutugunum þremur í þrjú tímabil. Það fyrsta hafi verið frá 1995 til 2004 (Toy Story til The Incredibles), sem hægt sé að kalla gullöld Pixar. Þarna vann fyrirtækið með Disney sem endaði svo á að kaupa Pixar árið 2006.

Annað tímabilið er frá 2004 til 2010, með myndum eins og WALL-E og Ratatouille.

Eftir frumsýningu Toy Story 3 árið 2010 byrjaði núverandi tímabil Pixar sem hægt er að skipta í tvo undirflokka: framhaldsmyndir og tilraunamyndir. Meðal mynda í síðarnefnda flokknum eru Coco og Inside Out.

Kíktu á listann hér fyrir neðan, við byrjum á númer 26 og endum á númer 1.

Cars 2

Cars 2 2011

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 106 mín6 áraIMDb 6.2

Í Cars 2 endurnýjum við kynnin við kappaksturbílinn síhressa, Lightning McQueen, en hann og hinn trausti vinur hans, dráttartrukkurinn skrautlegi Mater, leggja nú upp í sína fyrstu ferð út fyrir Bandaríkin, þar sem…

Gefa einkunn

Cars 3

Cars 3 2017

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 80 mínÖllum leyfðIMDb 6.7

Hinn goðsagnakenndi kappakstursbíll Lightning McQueen þarf að víkja fyrir nýrri kynslóð hraðskreiðra kappakstursbíla. Til að fá að aftur að taka þátt í leiknum þá þarf hann að fá aðstoð hjá áhugasömum tæknimanni sem er…

Gefa einkunn

Góða risaeðlan

Góða risaeðlan 2014

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 100 mín6 áraIMDb 6.7

Í myndinni er spurt spurningarinnar hvað hefði gerst ef risaeðlurnar hefðu ekki dáið út fyrir 65 milljónum ára, þegar hinn meinti risaloftsteinn rakst á Jörðina. Eftir að risaeðlustrákurinn Arlo verður viðskila við…

Gefa einkunn

Ljósár

Ljósár 2022

Spenna, Ævintýri, Teiknað · 100 mínÖllum leyfðIMDb 6.1

Upprunasaga Bósa Ljósárs, hetjunnar sem var innblásturinn fyrir samnefnt leikfang. Hér er hinn goðsagnakenndi geimfari yfirgefinn á óvinaplánetu 4,2 milljón ljósár frá Jörðu ásamt yfirmanni sínum og öðrum…

Gefa einkunn

Monsters University

Monsters University 2013

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 110 mínÖllum leyfðIMDb 7.2

Myndin fjallar um þá Mike og Sulley og þeirra fyrstu kynni og hvernig þeir leystu úr ágreiningsefnum og urðu síðan bestu vinir. Já, þeir Maggi og Sölli voru nefnilega engir vinir þegar þeir voru ung skrímsli og þurftu…

Gefa einkunn

Finding Dory

Finding Dory 2016

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 94 mín6 áraIMDb 7.2

Myndin fjallar um hina gleymnu Dóru og leit hennar að fjölskyldu sinni. Sagan gerist um sex mánuðum eftir atburðina í fyrri myndinni, Leitin að Nemó. Allt í einu byrja minningar úr æsku Dóru að rifjast upp fyrir henni…

Gefa einkunn

Hin ótrúlegu 2

Hin ótrúlegu 2 2018

Spenna, Gaman, Ævintýri · 118 mínÖllum leyfðIMDb 7.5

Þótt þrettán ár séu liðin frá því við hittum Parr-fjölskylduna hefur tíminn í sögunni um þau lítið liðið því myndin byrjar nánast þar sem þeirri fyrstu lauk. Eftir að hafa bjargað heiminum frá glötun færist nú ró yfir…

Gefa einkunn

Áfram

Áfram 2020

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 114 mínÖllum leyfðIMDb 7.3

Bræðurnir Ívar og Barði eru unglingsálfar sem fá einstakt tækifæri til að eyða einum degi til viðbótar með látnum föður sínum. En fyrst verða þeir að leggja í ævintýraför á Háðvöru (kagganum hans Barða) með tilheyrandi…

Gefa einkunn

Luca

Luca 2021

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 95 mín6 áraIMDb 7.4

Óvænt en sterk vinátta myndast á milli ungs drengds, Luca, og sjóskrímslis sem er dulbúið eins og maður, á ítölsku ríverunni.

Horfa:Disney+
Gefa einkunn

Toy Story 4

Toy Story 4 2019

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 89 mínÖllum leyfðIMDb 7.6

Í Toy Story 4 mæta að sjálfsögðu öll gömlu og góðu leikföngin til leiks á ný með Vidda og Bósa ljósár í fararbroddi. Auk þess hafa nokkur ný leikföng bæst í hópinn, þar á meðal plastgaffallinn Fork, sem eigandi…

Gefa einkunn

Toy Story 2

Toy Story 2 1999

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 92 mínÖllum leyfðIMDb 7.9

Í Toy Story 2 hafa Woody og Buzz sæst frá því í fyrstu myndinni og er Woody að búa sig undir að fara í sumarbúðir yfir helgi með Andy, stráknum sem á öll leikföngin. Andy tekst því miður að rífa handlegginn óvart af…

Gefa einkunn

Brave

Brave 2012

100 mínÖllum leyfðIMDb 7.1

Myndin gerist í hinum dulúðlegu skosku hálöndum, þar sem Merida er prinsessa í konungsríki sem stjórnað er af Fergus kóngi, og Elinor drottningu. Merida er óstýrilát dóttir, og góður bogmaður. Einn daginn ákveður hún að…

Gefa einkunn

Cars

Cars 2006

Gaman, Ævintýri, Barna · 117 mín7 áraIMDb 7.3

Á leiðinni til Kaliforníu til að keppa í Piston Cup keppninni gegn The King og Chick Hicks, þá skemmir hinn frægi Lightning McQueen bíll, óvart veginn í smábænum Radiator Springs, og er dæmdur til að gera við…

Gefa einkunn

A Bug's Life

A Bug's Life 1998

Gaman, Ævintýri, Teiknað · 96 mínÖllum leyfðIMDb 7.2

Flik, útskúfaður maur, ákveður að finna "stríðspöddur" til að verja hina maurana gegn engissprettunum illu. Flik veit hins vegar ekki að liðið sem honum tókst að smala saman er hópur af sirkusfyrirbærum.

Gefa einkunn

Turning Red

Turning Red 2022

Gaman, Ævintýri, Teiknað · 100 mínÖllum leyfðIMDb 6.9

Þrettán ára stúlka, Mei Lee, breytist í risastóran rauðan pandabjörn alltaf þegar hún verður of æst. Mamma hennar, Ming, ofverndar hana aðeins meira en Lee þolir og það hjálpar ekki til.

Horfa:Disney+
Gefa einkunn

Monsters, Inc.

Monsters, Inc. 2001

Gaman, Fjölskylda, Teiknað · 92 mínÖllum leyfðIMDb 8.1

Eins og allir vita búa skrímsli í Skrímslaborg og fá orku frá öskrum barna sem hræðast þau. Staðreyndin er hins vegar að sum skrímslin í Skrímslaborg eru ekki síður hrædd við börn en börnin við þau. Þrátt fyrir það…

Gefa einkunn

WALL·E

WALL·E 2008

Gaman, Rómantík, Ævintýri · 98 mínÖllum leyfðIMDb 8.4

Árið er 2700 og WALL-E hefur eytt síðustu hundruðum ára einn að gera það sem hann var hannaður til að gera - að þrífa jörðina, en mennirnir skildu eftir sig svo mikið rusl að þeir þurftu að lokum að yfirgefa jörðina og…

Gefa einkunn

Ratatouille

Ratatouille 2007

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 111 mínÖllum leyfðIMDb 8.1

Remy lifir á rusli með fjölskyldu sinni á sveitabýli, en ólíkt flestum hefur hann stóra drauma; hann þráir það heitast að verða kokkur. Á flótta frá býlinu stía örlögin honum frá fjölskyldunni og staðsetja hann á…

Gefa einkunn

Finding Nemo

Finding Nemo 2003

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 100 mínÖllum leyfðIMDb 8.2

Fiskur af trúðfiskakyni sem heitir Marlin, býr í Great Barrier kóralrifjunum. Hann týnir syni sínum Nemo þegar Nemo fer á flakk út á opið haf , þrátt fyrir að faðir hans sé stöðugt að vara hann við hættum úthafsins…

Gefa einkunn

The Incredibles

The Incredibles 2004

Spenna, Gaman, Ævintýri · 115 mínÖllum leyfðIMDb 8.0

Bob Parr, öðru nafni Hr. Ótrúlegur, og eiginkona hans Helen, öðru nafni Elastigirl ( teygjustúlka ), eru heimsins mestu ofurhetjur. Þau búa í Metroville og berjast þar gegn glæpum. Þau eru í sífellu að bjarga lífum og…

Gefa einkunn

Toy Story

Toy Story 1995

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 81 mínÖllum leyfðIMDb 8.3

Toy Story segir frá nokkrum leikföngum í eigu stráksins Andy, en þó sér í lagi Woody, gamaldags kúreka sem er leiðtogi leikfanganna af því að hann er uppáhaldsleikfang Andys. Þegar Andy er ekki nálægt lifna leikföngin…

Gefa einkunn

Coco

Coco 2017

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 90 mínÖllum leyfðIMDb 8.4

Coco segir frá hinum músíkalska Miguel sem þráir að verða tónlistarmaður eins og Ernesto de la Cruz sem var álitinn stórkostlegasti gítarleikari og söngvari Mexíkó á sínum tíma. Vandamálið er að fjölskylda Miguels lítur…

Gefa einkunn

Inside Out

Inside Out 2015

Gaman, Fjölskylda, Teiknað · 102 mínÖllum leyfðIMDb 8.1

Inside Out segir frá ungri stúlku, foreldrum hennar og tilfinningunum sem bærast innra með þeim og stjórna daglegri líðan þeirra og skapsveiflum. Inside Out segir frá ungri stúlku, Dagnýju, sem er nýflutt ásamt…

Gefa einkunn

Up

Up 2009

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 96 mínÖllum leyfðIMDb 8.3

Carl Fredericksen er 78 ára, einmana gamall fýlupoki sem hefur lítið að gera á daginn. Dag einn ákveður hann að láta gamlan draum, sem hann og nýlátin kona hans áttu, verða að veruleika, og fara í ferðalag til…

Gefa einkunn

Soul

Soul 2020

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 100 mín6 áraIMDb 8.0

Tónlistarmaðurinn Joe Gardner er í tilvistarkreppu. Hann elskar djass, en er búinn að gefa drauminn um að verða sjálfur djassleikari upp á bátinn. Dag einn dettur hann niður í holræsi og lendir á ævintýralegum stað þar…

Horfa:Disney+
Gefa einkunn

Toy Story 3

Toy Story 3 2010

Gaman, Ævintýri, Fjölskylda · 103 mínÖllum leyfðIMDb 8.3

Addi er orðinn 18 ára og vaxinn upp úr leikföngunum sínum. Hann ætlar sér að setja þau öll upp á háaloft, en móðir Adda gefur þau óvart til leikskóla. Börnin á leikskólanum leika sér því miður ekki fallega með dótið…

Gefa einkunn