Teiknimyndafyrirtækið Pixar hefur verið við lýði í næstum þrjá áratugi, en bráðum 28 ár eru frá því fyrsta myndin í fullri lengd kom frá fyrirtækinu. Vefritið Men´s Health raðaði tuttugu og sex myndum í röð eftir gæðum og má sjá listann hér fyrir neðan. [Ath. listinn var gerður áður en Elemental kom út í fyrrasumar.]

Í formála segir Men´s Health að hægt sé að skipta árutugunum þremur í þrjú tímabil. Það fyrsta hafi verið frá 1995 til 2004 (Toy Story til The Incredibles), sem hægt sé að kalla gullöld Pixar. Þarna vann fyrirtækið með Disney sem endaði svo á að kaupa Pixar árið 2006.
Annað tímabilið er frá 2004 til 2010, með myndum eins og WALL-E og Ratatouille.
Eftir frumsýningu Toy Story 3 árið 2010 byrjaði núverandi tímabil Pixar sem hægt er að skipta í tvo undirflokka: framhaldsmyndir og tilraunamyndir. Meðal mynda í síðarnefnda flokknum eru Coco og Inside Out.
Kíktu á listann hér fyrir neðan, við byrjum á númer 26 og endum á númer 1.

Góða risaeðlan 2014
Í myndinni er spurt spurningarinnar hvað hefði gerst ef risaeðlurnar hefðu ekki dáið út fyrir 65 milljónum ára, þegar hinn meinti risaloftsteinn rakst á Jörðina. Eftir að risaeðlustrákurinn Arlo verður viðskila við…

Monsters University 2013
Myndin fjallar um þá Mike og Sulley og þeirra fyrstu kynni og hvernig þeir leystu úr ágreiningsefnum og urðu síðan bestu vinir. Já, þeir Maggi og Sölli voru nefnilega engir vinir þegar þeir voru ung skrímsli og þurftu…

Finding Dory 2016
Myndin fjallar um hina gleymnu Dóru og leit hennar að fjölskyldu sinni. Sagan gerist um sex mánuðum eftir atburðina í fyrri myndinni, Leitin að Nemó. Allt í einu byrja minningar úr æsku Dóru að rifjast upp fyrir henni…

Hin ótrúlegu 2 2018
Þótt þrettán ár séu liðin frá því við hittum Parr-fjölskylduna hefur tíminn í sögunni um þau lítið liðið því myndin byrjar nánast þar sem þeirri fyrstu lauk. Eftir að hafa bjargað heiminum frá glötun færist nú ró yfir…

Toy Story 4 2019
Í Toy Story 4 mæta að sjálfsögðu öll gömlu og góðu leikföngin til leiks á ný með Vidda og Bósa ljósár í fararbroddi. Auk þess hafa nokkur ný leikföng bæst í hópinn, þar á meðal plastgaffallinn Fork, sem eigandi…

Toy Story 2 1999
Í Toy Story 2 hafa Woody og Buzz sæst frá því í fyrstu myndinni og er Woody að búa sig undir að fara í sumarbúðir yfir helgi með Andy, stráknum sem á öll leikföngin. Andy tekst því miður að rífa handlegginn óvart af…

A Bug's Life 1998
Flik, útskúfaður maur, ákveður að finna "stríðspöddur" til að verja hina maurana gegn engissprettunum illu. Flik veit hins vegar ekki að liðið sem honum tókst að smala saman er hópur af sirkusfyrirbærum.

Turning Red 2022
Þrettán ára stúlka, Mei Lee, breytist í risastóran rauðan pandabjörn alltaf þegar hún verður of æst. Mamma hennar, Ming, ofverndar hana aðeins meira en Lee þolir og það hjálpar ekki til.

Monsters, Inc. 2001
Eins og allir vita búa skrímsli í Skrímslaborg og fá orku frá öskrum barna sem hræðast þau. Staðreyndin er hins vegar að sum skrímslin í Skrímslaborg eru ekki síður hrædd við börn en börnin við þau. Þrátt fyrir það…

Ratatouille 2007
Remy lifir á rusli með fjölskyldu sinni á sveitabýli, en ólíkt flestum hefur hann stóra drauma; hann þráir það heitast að verða kokkur. Á flótta frá býlinu stía örlögin honum frá fjölskyldunni og staðsetja hann á…

Finding Nemo 2003
Fiskur af trúðfiskakyni sem heitir Marlin, býr í Great Barrier kóralrifjunum. Hann týnir syni sínum Nemo þegar Nemo fer á flakk út á opið haf , þrátt fyrir að faðir hans sé stöðugt að vara hann við hættum úthafsins…

The Incredibles 2004
Bob Parr, öðru nafni Hr. Ótrúlegur, og eiginkona hans Helen, öðru nafni Elastigirl ( teygjustúlka ), eru heimsins mestu ofurhetjur. Þau búa í Metroville og berjast þar gegn glæpum. Þau eru í sífellu að bjarga lífum og…

Inside Out 2015
Inside Out segir frá ungri stúlku, foreldrum hennar og tilfinningunum sem bærast innra með þeim og stjórna daglegri líðan þeirra og skapsveiflum. Inside Out segir frá ungri stúlku, Dagnýju, sem er nýflutt ásamt…

Toy Story 3 2010
Addi er orðinn 18 ára og vaxinn upp úr leikföngunum sínum. Hann ætlar sér að setja þau öll upp á háaloft, en móðir Adda gefur þau óvart til leikskóla. Börnin á leikskólanum leika sér því miður ekki fallega með dótið…
















