Topp tíu endurfundir eftir dauðann

Allir sem reynt hafa vita hve sárt það er að missa ástvin. Því er tilhugsunin um að geta mögulega hitt hann aftur betri en allt annað, þó við vitum auðvitað að slíkt er illmögulegt.

Gerðar hafa verið ófáar kvikmyndir um þessar vangaveltur í gegnum tíðina og hér fyrir neðan er topplisti sem við settum saman með hjálp gervigreindarleitarinnar. dejams.com .

Þar má meðal annars sjá Ghost með Patrick Swayse og Demi Moore og City of Angels með Nicolas Cage og Meg Ryan í aðalhlutverkum.

Ghost

Ghost 1990

Rómantík, Drama, Spennutryllir · 128 mín12 áraIMDb 7.1

Sam og Molly eru hamingjusamt par og mjög ástfangin. Á leið heim til sín eitt kvöldið, eftir að hafa farið í leikhús, þá mæta þau þjófi í dimmu húsasundi, og Sam er myrtur. Hann uppgötvar að hann er nú orðinn draugur…

Gefa einkunn

Truly Madly Deeply

Truly Madly Deeply 1990

Gaman, Rómantík, Drama · 106 mínÖllum leyfðIMDb 7.2

Einu sinni var ástfangið par, þau Nina og Jamie. Þau voru svo ástfangin að þau hefðu lifað hamingjusöm til æviloka, en þá deyr Jamie. Nina situr eftir með fullt hús af rottum og iðnaðarmönnum, hún kennir útlendingum…

Gefa einkunn

Just Like Heaven

Just Like Heaven 2005

Gaman, Rómantík, Ævintýri · 95 mínEkki við hæfi mjög ungra barnaIMDb 6.7

Elizabeth Masterson, metnaðarfullur læknir í San Fransisco, gaf sér nánast aldrei tíma í neitt. Þegar systir hennar, tveggja barna móðir, stingur upp á manni fyrir hana til að hitta á stefnumóti, þá lendir hún í…

Horfa:Síminn
Gefa einkunn

The Adjustment Bureau

The Adjustment Bureau 2011

Rómantík, Spennutryllir, Vísindaskáldskapur · 106 mín10 áraIMDb 7.0

Stjórnum við sjálf örlögum okkar, eða eru önnur öfl að verki. Maður verður þess áskynja hver örlög hans eru, en vill sjálfur gera eitthvað allt annað. En til að breyta örlögunum, verður hann að elta einu konuna sem…

Gefa einkunn

City of Angels

City of Angels 1998

Rómantík, Drama, Ævintýri · 114 mín12 áraIMDb 6.7

Seth er eirðarlaus engill sem er á vakt í Los Angeles. Hans verkefni er að hugga þá sem eiga um sárt að binda, og fylgja þeim sem deyja til himna. Seth og engillinn vinur hans, Cassiel, velta því oft fyrir sér hvernig…

Gefa einkunn

Meet Joe Black

Meet Joe Black 1998

Rómantík, Drama, Ævintýri · 178 mínÖllum leyfðIMDb 7.2

Bill Parrish, fjölmiðlamógúll, ástríkur faðir og mannvinur, er um það bil að fara að fagna 65 ára afmæli sínu. Dag einn fær hann heimsókn frá sjálfum Dauðanum, í gervi karlmanns að nafni Joe Black. Black ætlaði sér að…

Gefa einkunn

Heart and Souls

Heart and Souls 1993

Gaman, Drama, Ævintýri · 104 mín6 áraIMDb 7.0

Lífsleiður athafnamaður finnur nýjan tilgang eftir að hann fær það verkefni að hjálpa fjórum draugum að uppfylla síðustu óskir sínar áður en þeir flytjast áfram yfir í sumarlandið.

Gefa einkunn

The Lake House

The Lake House 2006

Rómantík, Drama, Ævintýri · 99 mínÖllum leyfðIMDb 6.8

Arkitektinn einmana, Alex Wyler frá Chicago, á í erfiðu sambandi við föður sinn Simon Wyler. Árið 2004 kaupir hann gamalt hús við vatnið, sem er hannað og byggt af föður hans, og þar finnur hann bréf í póstkassanum frá…

Gefa einkunn

A Matter of Life and Death

A Matter of Life and Death 1946

Gaman, Rómantík, Drama · 104 mínIMDb 8.0

Flugmaðurinn Peter Carter er á leið heim til Englands eftir sprengjuárás á meginlandinu. Flugvélin brennur og fallhlíf hans er ónýt. Hann nær sambandi við June, unga ameríska stúlku sem vinnur fyrir bandaríska…

Gefa einkunn

What Dreams May Come

What Dreams May Come 1998

Rómantík, Drama, Ævintýri · 113 mín12 áraIMDb 7.0

Chris Neilson deyr og fer til himna og uppgötvar að himnaríki er miklu flottara og skemmtilegra en hann hafði gert sér í hugarlund. Það vantar þó einn hlut í himnaríki; konuna hans. Annie, konan hans, framdi…

Gefa einkunn