Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraMyndin vísar til eða sýnir notkun vímuefnaMyndin getur valdið ótta hjá eða er ógnvekjandi fyrir ung börnÍ myndinni er ljótt orðbragð

Stand Up Guys 2012

Frumsýnd: 22. nóvember 2013

It´s Never Too Late to Set Things Right.

95 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 37% Critics
The Movies database einkunn 41
/100

Stand Up Guys gerist á 24 klukkustundum og hefst á því að Val (Al Pacino) fær frelsi sitt að nýju eftir að hafa dúsað á bak við lás og slá í 28 ár fyrir vopnað rán. Á móti honum tekur vinur hans Doc (Christopher Walken) og er óhætt að segja að fagnaðarfundir verði með þeim félögum. Þeir ákveða að halda upp á endurfundina með því að rifja upp... Lesa meira

Stand Up Guys gerist á 24 klukkustundum og hefst á því að Val (Al Pacino) fær frelsi sitt að nýju eftir að hafa dúsað á bak við lás og slá í 28 ár fyrir vopnað rán. Á móti honum tekur vinur hans Doc (Christopher Walken) og er óhætt að segja að fagnaðarfundir verði með þeim félögum. Þeir ákveða að halda upp á endurfundina með því að rifja upp gamla takta og mála bæinn rauðan. Eitt af því sem þeir gera er að hafa uppi á þriðja félaganum, Hirsch (Alan Arkin). Sá var ökumaðurinn í ráninu sem Val var dæmdur fyrir á sínum tíma, en dvelur nú með öndunargrímu á elliheimili. Það hvílir hins vegar skuggi yfir gleðinni. Glæpaforinginn Claphands (Mark Margolis) hefur nefnilega fyrirskipað Doc að drepa Val fyrir klukkan 10 árdegis næsta dag ella muni Doc sjálfur deyja. Þetta setur Doc að sjálfsögðu í mikinn vanda, ekki síst vegna þess að Val veit hvað stendur til ...... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn