Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraÍ myndinni er sýnd nekt og/eða þar er að finna kynferðislega hegðun eða tilvísanirMyndin vísar til eða sýnir notkun vímuefnaÍ myndinni er ljótt orðbragð

We're the Millers 2013

Frumsýnd: 14. ágúst 2013

-If anyone asks.

110 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 48% Critics
The Movies database einkunn 44
/100

Gamalreyndur marijúanasölumaður býr til gervifjölskyldu til að hjálpa til við að flytja risastóra sendingu af marijúana til Bandaríkjanna frá Mexíkó. David Burke hefur í sig og á með marijúanasölu. Dag einn býður léttgeggjaður eiturlyfjakóngur honum að skreppa fyrir sig til Mexíkó og ná þar í dálítinn farm af marijúana gegn 100 þúsund dollara... Lesa meira

Gamalreyndur marijúanasölumaður býr til gervifjölskyldu til að hjálpa til við að flytja risastóra sendingu af marijúana til Bandaríkjanna frá Mexíkó. David Burke hefur í sig og á með marijúanasölu. Dag einn býður léttgeggjaður eiturlyfjakóngur honum að skreppa fyrir sig til Mexíkó og ná þar í dálítinn farm af marijúana gegn 100 þúsund dollara greiðslu. Í fyrstu líst David ekkert á þetta en neyðist til að samþykkja dílinn þar sem hann er á milli steins og sleggju gagnvart kónginum. Í því skyni að villa um fyrir landamæravörðum bregður David á það ráð að fá nágrannakonu sína Rose til að þykjast vera eiginkona hans í ferðinni, en Rose er nektardansmær að mennt og ákveður eftir efablandna umhugsun að slá til. Til að fullkomna „fjölskylduna“ fær David síðan hinn grunnhyggna Kenny til að leika soninn og hina uppreisnargjörnu strokustúlku Casey í hlutverk dótturinnar. Og nú er bara að sjá hvernig þessari sérkennilegu fjölskyldu gengur að klóra sig í gegnum verkefnið ...... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn