Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraÍ myndinni er sýnd nekt og/eða þar er að finna kynferðislega hegðun eða tilvísanirÍ myndinni er ljótt orðbragð

Life of Crime 2013

Frumsýnd: 5. september 2014

Right Target. Wrong Woman.

94 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 68% Critics
The Movies database einkunn 60
/100

Frank Dawson er vellauðugur fasteignabraskari sem hefur ekki lagt neina sérstaka áherslu á að vera réttum megin við lögin í viðskiptum sínum og er frekar illa liðinn af mörgum sem hann hefur átt viðskipti við. Hjónaband hans og eiginkonunnar, Mickey, stendur líka á brauðfótum, enda vill Frank frekar eyða tímanum með ástkonu sinni, Melanie. Dag einn fá tveir... Lesa meira

Frank Dawson er vellauðugur fasteignabraskari sem hefur ekki lagt neina sérstaka áherslu á að vera réttum megin við lögin í viðskiptum sínum og er frekar illa liðinn af mörgum sem hann hefur átt viðskipti við. Hjónaband hans og eiginkonunnar, Mickey, stendur líka á brauðfótum, enda vill Frank frekar eyða tímanum með ástkonu sinni, Melanie. Dag einn fá tveir smáglæpamenn, þeir Marshall og Ordell, augastað á auðæfum Franks og ákveða að kúga út úr honum eins og eina milljón dollara með því að ræna Mickey og krefjast lausnargjalds. Mannránið gengur eftir en í stað þess að greiða lausnargjaldið verður Frank bara feginn því að Mickey hafi verið rænt og vonar að hún komi aldrei til baka. Þetta setur ræningjana auðvitað í vanda því í stað þess að græða á gjörningnum sitja þeir nú uppi með Mickey. En hún leynir á sér ...... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn