Horrible Bosses 2
2014
Frumsýnd: 19. desember 2014
Taking Care of Business
108 MÍNEnska
35% Critics
47% Audience
40
/100 Félagarnir Nick, Dale og Kurt eru komnir með upp í kok af því að vinna fyrir aðra, og ákveða því að stofna sitt eigið fyrirtæki í kringum nýja uppfinningu. En lævís fjárfestir svíkur þá, þegar hann pantar hjá þeim 100
þúsund stykki af uppfinningunni en hættir svo við
þegar búið er að framleiða alla pöntunina, og þar með er ævintýrið fyrir... Lesa meira
Félagarnir Nick, Dale og Kurt eru komnir með upp í kok af því að vinna fyrir aðra, og ákveða því að stofna sitt eigið fyrirtæki í kringum nýja uppfinningu. En lævís fjárfestir svíkur þá, þegar hann pantar hjá þeim 100
þúsund stykki af uppfinningunni en hættir svo við
þegar búið er að framleiða alla pöntunina, og þar með er ævintýrið fyrir bí. Núna eru þeir bæði niðurlægðir og örvæntingarfullir og eiga enga von um að ná fram réttlæti gagnvart fjárfestinum. Þeir ákveða því að ræna fullorðnum syni fjárfestisins og krefja hann um lausnargjald til að ná fyrirtækinu sínu aftur úr höndunum á honum.
En líf glæpamannsins er ekki alltaf dans á rósum, og áður en varir þurfa félagarnir að rukka inn greiða frá gömlum kunningjum.... minna