Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraÍ myndinni er sýnd nekt og/eða þar er að finna kynferðislega hegðun eða tilvísanirÍ myndinni er ljótt orðbragð

Ride Along 2014

Frumsýnd: 21. febrúar 2014

Propose to this cop's sister? Rookie mistake.

99 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 17% Critics
The Movies database einkunn 41
/100

Ben Barber ætlar að giftast Angelu unnustu sinni. En fyrst þarf hann að sanna fyrir bróður hennar, löggunni James, að hann sé verðugur eiginmaður hennar. Ben Barber starfar sem öryggisvörður í grunnskóla þar sem hann reynir sitt besta til að fá nemendur og aðra sem koma á skólalóðina til að halda friðinn. Ben dreymir reyndar um að verða lögga en hefur... Lesa meira

Ben Barber ætlar að giftast Angelu unnustu sinni. En fyrst þarf hann að sanna fyrir bróður hennar, löggunni James, að hann sé verðugur eiginmaður hennar. Ben Barber starfar sem öryggisvörður í grunnskóla þar sem hann reynir sitt besta til að fá nemendur og aðra sem koma á skólalóðina til að halda friðinn. Ben dreymir reyndar um að verða lögga en hefur ekki enn látið verða af því að sækja um, kannski vegna þess að bróðir unnustu hans, hinn harðsnúni lögreglumaður James Payton, hefur minna en lítið álit á honum og vill helst að systir sín láti hann sigla sinn sjó. Við það er systirin hins vegar ósátt enda elskar hún Ben og vill að hann verði eiginmaður sinn. Til að svo megi verða verður Ben hins vegar að sanna fyrir James í eitt skipti fyrir öll að hann hafi í sér meiri manndóm en hann heldur ...... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn