Kick-Ass 2

Kick-Ass 2 (2013)

Kick-Ass 2: Balls to the Wall

"Réttlætið ofar öllu!"

1 klst 53 mín2013 1 umfjöllun

Eftir að hafa sýnt klikkað hugrekki sem sjálfskipaða ofurhetjan Kick - Ass, þá hrindir hann af stað nýrri bylgju sjálfskipaðra grímuklæddra ofurhetja.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

2 einkunnir á Kvikmyndir.is

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldiKynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Hvar má horfa

Streymi
Netflix
Leiga

Söguþráður

Eftir að hafa sýnt klikkað hugrekki sem sjálfskipaða ofurhetjan Kick - Ass, þá hrindir hann af stað nýrri bylgju sjálfskipaðra grímuklæddra ofurhetja. Þar er fremstur í flokki Stars and Stripes ofursti, og Kick-Ass gengur til liðs við þessar hetjur. Þegar hetjurnar verða fyrir árás Red Mist, sem er nú endurfæddur sem The Mother F....r, þá er það einungis hins hnífa- og sverðasveiflandi Hit Girl sem getur komið í veg fyrir algera útrýmingu þeirra. Síðast sáum við unga launmorðingjann Hit Girl og hina ungu sjálfskipuðu ofurhetju Kick-Ass þegar þau voru að reyna að lifa sínu lífi sem venjulegir unglingar, Mindy og Dave. Nú er útskrift úr skóla á næsta leiti og óvíst hvað tekur við. Dave ákveður að stofna heimsins fyrsta ofurhetjuteymi ásamt Mindy. Til allrar óhamingju þá er Mindy gripin glóðvolg í Hit Girl búningnum sínum við það reyna að stelast út að kvöldi til, og hún leggur því búninginn á hilluna og neyðist til að takast á við lífið í skólanum eins og hver önnur venjulegt stúlka. Nú hefur Dave engan til að vinna með, og ákveður því að slást í lið með Justice Forever, sem er hópur sem fyrrum mafíósinn Colonel Stars and Stripes stjórnar. Þegar hópurinn er loksins farinn að láta til sín taka úti á götum borgarinnar þá mætir heimsins fyrsta ofur - illmennið, The Mother F....r, á svæðið ásamt illvígu teymi sínu, en hann vill láta Kick-Ass og Hit Girl borga fyrir það sem þau gerðu föður hans. En það er eitt vandamál við þetta allt saman: þegar þú áreitir einn meðlim Justice Forever, þá ertu að áreita alla meðlimi hópsins.

Svipaðar myndir

Kick-Ass
Kick-Ass
2010·IMDb 7.6
Með Aaron Taylor-Johnson og Chloë Grace Moretz
Einkunn
Sicario
Sicario
2015·IMDb 7.7
Líka spenna
Einkunn
Stolen
Stolen
2012·IMDb 5.5
Líka spenna
Einkunn
Repo Men
Repo Men
2010·IMDb 6.3
Líka spenna
Disney+
Einkunn

Myndbönd

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Umsagnir á TMDB

Framleiðendur

MarvGB
Universal PicturesUS