J. Edgar
2011
Frumsýnd: 20. janúar 2012
The Most Powerful Man in the World
137 MÍNEnska
43% Critics
44% Audience
59
/100 Leonardo DiCaprio hlaut tilnefningu til
Golden Globe-verðlaunanna fyrir frammistöðu
sína í titilhlutverkinu.
Mynd um John Edgar Hoover, sem var aðalstofnandi bandarísku
alríkislögreglunnar FBI árið1932 og stjórnaði henni til dauðadags,
árið 1972.
Á starfsferli sínum innan FBI var J. Edgar Hoover valdamesti maður
Bandaríkjanna enda hafði hann lögsögu yfir öllum lögreglumálum
allra ríkjanna.
Sem forstjóri FBI lagði hann ætíð gríðarlega áherslu á að hann myndi
alltaf... Lesa meira

alltaf gera allt til að vernda Bandaríkin og bandaríska þegna gegn
glæpum og hvers konar utanaðkomandi vá. Og vegna þess að
hann lét verkin tala öðlaðist hann óskorað traust í starfi þótt um
hann væri vissulega deilt.
En Hoover beitti sjálfur brögðum sem voru kannski ekki alveg réttum
megin við strikið. Hann lagði til dæmis alltaf mikla áherslu á að komast
að leyndarmálum þeirra sem hann þurfti að umgangast og eiga við,
ekki síst stjórnmálamanna, og var ekki feiminn við að láta viðkomandi
vita að hverju hann hefði komist. Þannig nýtti hann sér óspart veikleika
annarra til að hafa sitt fram.
Á sama tíma lagði Hoover gríðarlega áherslu á að enginn kæmist að
leyndarmálum hans sjálfs. Í gegnum árin hleypti hann aðeins örfáum
aðilum að sér, þar á meðal nánasta samstarfsmanni sínum, Clyde
Tolson, og einkaritaranum Helen Gandy sem var honum trú og
trygg alla ævi.... minna