Sumarlandið
2010
(Summerland)
Ekki aðgengileg á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 17. september 2010
85 MÍNÍslenska
Hjónin Lára og Óskar reka fjölskyldufyrirtæki þar sem gert
er út á ýmsa yfirnáttúrulega starfsemi. Lára er virtur miðill
og í góðum tengslum við álfheima. Í garðinum við hús þeirra
stendur voldugur álfasteinn og Lára umgengst íbúa hans af
mikilli virðingu. Óskar er aftur á móti alveg laus við andlega
hæfileika, en sér um reksturinn og markaðssetur... Lesa meira
Hjónin Lára og Óskar reka fjölskyldufyrirtæki þar sem gert
er út á ýmsa yfirnáttúrulega starfsemi. Lára er virtur miðill
og í góðum tengslum við álfheima. Í garðinum við hús þeirra
stendur voldugur álfasteinn og Lára umgengst íbúa hans af
mikilli virðingu. Óskar er aftur á móti alveg laus við andlega
hæfileika, en sér um reksturinn og markaðssetur hæfileika
konu sinnar með fremur óhefðbundnum hætti.
Þar sem uppgangurinn virtist óendanlegur á Íslandi fannst
Óskari þjóðráð að hugsa stórt eins og aðrir og ákvað að
útbúa draugasafn í kjallaranum til að laða fleiri að. Hann
hafði greiðan aðgang að lánsfé og lét hendur standa fram úr
ermum.
Viðskiptamódelið gekk hins vegar ekki upp og lánardrottnar
eru búnir að missa þolinmæðina. Óskar leynir fjölskyldu sína
því að gjaldþrot blasi við og er á barmi örvæntingar. Honum
finnst hann því himin höndum hafa tekið þegar þýskur
sérvitringur gerir honum rausnarlegt tilboð í álfasteininn;
tilboð sem myndi leysa fjárhagsvandann á einu bretti. Óskar
veit þó að Lára tæki ekki í mál að hrófla við steininum. Hann
grípur því til örþrifaráða og selur steininn án samráðs við
hana.
Í kjölfarið hefst óvænt atburðarás með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum.... minna