Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Minority Report er alveg pottþétt ein af allra bestu myndum sem hafa komið fram. Ég er einn af þeim sem dírka vísindaskáldskap og er þessi mynd alveg frábært dæmi um þær.
Minority Report gerist í framtíðinni og þar er búið að finni upp á einhverju kerfi sem lögreglan getur séð fyrir hvort það sé verið að fara að fremja morð og hvar og allt þetta....
Nema hvað að Tom Crusie sem leikur lögreglumann, sér fyrir morð og það undarlega er það að hann á að fremja það á manni sem hann hefur aldrei heyrt um áður. Crusie gerist því flóttamaður og fer að vinna í því að leisa þetta mál. En mitt mat á myndinni er verulega jákvætt og mæli ég sterklega með þessari mynd.
Minority Report er áhugaverð mynd úr smiðju Stevens Spielbergs. Myndin gerist í framtíðinni en hún fjallar um löggu (Tom Cruise,The Last Samurai) en glæpamenn á þessum tíma eru handtekir áður en þeir fremja glæp. En hann er handtekin fyrir yfirvofandi glæp sem hann veit ekki einu sinni hvað hann ætlar að gera en hann flýr frá hinum og þá hefst eltingarleikurinn,og leit hans fyrir sannleikann.
Það er allt sem er jákvætt við þessa mynd nema endirinn.Hún er afar svöl og leikstjórn,tæknibrellur og leikur er til fyrirmyndar og hugmyndin er drullufín en Hollywood-endirinn bankar á dyrnar einsog óvelkominn sölumaður og þar liggur bömmerinn.Ef þú hugsar:Hollywood áður en þú sérð þessa mynd........sorry þá veistu hvernig hún endar
Þetta er einn besti spennutryllir sem ég hef séð í áraraðir. Þessi mynd er um John Anderton sem vinnur hjá Pre-Crime Division sem er einhverskonar löggur sem sjá glæpinn áður en hann er framinn. Einn daginn er John ásakaður fyrir morð vegna sýnar sem þeir fengu hjá Pre-Crime. Þá byrjar eltingarleikurinn á milli John Anderton og sérþjálfaða sveit sem hann þjálfaði sjálfur. Atburðarrásin er snilldarleg í gegn, og mun leiða þig til sérstakann enda.
Þetta alveg mögnuð mynd sem ég mæli sterklega með. Ég er ánægður með Tom Cruise og fleiri leikara. Myndin er rosalega vel gerð og er hugsað fyrir öllu. Þessi mynd er alls ekki neitt rugl eins og flestar framtíða myndir. En ég er ónánægður með hvað hún er langdreigin og að það hefði mátt vera meiri hasar. En hún fær alveg 3 stjörnur og er alls ekki langt frá 3 og hálfri stjörnu, því þetta er mjög góð mynd!
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Framleiðandi
Dreamworks
Kostaði
$102.000.000
Tekjur
$358.372.926
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
9. ágúst 2002