Náðu í appið
Bönnuð innan 16 ára

Torrente 1998

(Torrente, the Stupid Arm of the Law)

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Frumsýnd: 19. nóvember 1999

Ahora que pensabas que el cine español empezaba a mejorar...

97 MÍNSpænska

Torrente (Santiago Segura) er latur, feitur, drykkfelldur, fordómafullur og sjálfselskur sóði. Hann er jafnframt lögga í höfuðborg Spánar, Madrid. Til að endurheimta virðingu samborgaranna, og vinna athygli Amparito (Neus Asensi), sætrar dóttur nágrannans, ræðst hann til atlögu við austurlenskan eiturlyfjahring sem starfræktu er í hverfinu, með aðstöð Rafi... Lesa meira

Torrente (Santiago Segura) er latur, feitur, drykkfelldur, fordómafullur og sjálfselskur sóði. Hann er jafnframt lögga í höfuðborg Spánar, Madrid. Til að endurheimta virðingu samborgaranna, og vinna athygli Amparito (Neus Asensi), sætrar dóttur nágrannans, ræðst hann til atlögu við austurlenskan eiturlyfjahring sem starfræktu er í hverfinu, með aðstöð Rafi (Javier Cámara), aulalegs bróður Amparito, og vina hans. Þetta er óhefluð spænsk gaman- og háðsútgáfa af bandarísku löggumyndahefðinni, sem sló gersamlega í gegn í Evrópu í sumar og haust.... minna

Aðalleikarar


Þessi mynd er einfaldlega snilld, það er ekki flóknara. Í þessari mynd sést líklega einn mesti viðbjóður sem sést hefur í mynd. Hann er svo mikill viðbjóður og mikil rotta en samt hefur maður lúmskt gaman af honum og hans uppátækjum. Hann er feitur sveittur og ógeðslegur. Gæinn með flöskubotnagleraugun er líka ansi flottur. Þessa mynd verða allir að sjá, ég tek ofan fyrir spænskri kvikmyndagerð..
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Frábær grínmynd. Gert mikið út á hversu einn maður getur verið mikill rasisti, fasisti, hommahatari og samt lifað einsog rotta og verið sama um allt. Án efa ein allra fyndnasta mynd ársins 1999.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn