Aðalleikarar
Hér er komin önnur mynd þeirra Nick Parks og Peter Lords um þá félaga Wallace og Gromit. Í þessari mynd á Gromit afmæli og Wallace ákveður að gefa honum svona vélbuxur svo að hann þurfi ekki að fara í göngutúr með hann. Svo eru þeir líka að leigja herbergi til þess að borga skuldir sem þeir skulda, vegna þess að gjafirnar sem Wallace keypti handa Gromit kostuðu svo mikið. Þá kemur mörgæs sem vill leigja herbergið þeirra. Gromit fer síðan að gruna mörgæsina þegar að hann sér eitthvað plan hans á borðinu. Þá fara mestu vandræðin að byrja fyrir þá félaga. Þetta er jafn mikil snilld eins og hinar myndirnar þeirra félaga, en þetta er myndin sem þeir fengu Óskarsverðlaunin fyrir. 4 stjörnur.