Ray Liotta hefur samið um að leika í myndinni Wanderlust, ásamt þeim Paul Rudd, Jennifer Aniston, Justin Theroux, Lauren Ambrose, Malin Akerman og Alan Alda, að því er Hollywood Reporter greinir frá.
Myndin, sem leikstýrt verður af David Wain eftir handriti sem hann skrifaði sjálfur ásamt Ken Marino, fjallar um hjón, leikin af Aniston og Rudd, sem reyna að flýja nútíma samfélag með því að flytja frá New York.
Það er sjálft framleiðslufyrirtæki Judd Apatow sem framleiðir myndina og Apatow, Wain, Marino og Rudd eru allir hluti af framleiðsluteyminu.