Rian Johnson, sem leikstýrði tímaflakkstryllinum Looper, er sagður í samningaviðræðum um að leikstýra tveimur Star Wars-myndum, eða númer VIII og IX.
Samkvæmt vefsíðunni Deadline er Lucasfilm, sem er í eigu Disney, í viðræðum við Johnson.
Looper vakti mikla athygli á Johnson en Joseph Gordon-Levitt og Bruce Willis voru í aðahlutverkum. Johnson hefur einnig leikstýrt þremur þáttum af Breaking Bad.
Star Wars Episode VII er í undirbúningi í leikstjórn J.J. Abrams og er frumsýning áætluð í desember 2015.