Tökur hófust í gær á kvikmyndinni High Expectations, en þar fer Kelsey Grammer með aðalhlutverkið.
Myndin er framleidd af Kristni Þórðarsyni, sem er einna þekktastur fyrir framleiðslu sína á íslensku glæpaþáttunum Brot. Þættirnir sýndir voru á RÚV fyrr á árinu og ganga undir heitinu The Valhalla Murders á Netflix.
Fréttamiðillinn Screen Daily greindi meðal annars frá framleiðslunni og segir High Expectations frá ungum fótboltaspilara (Taylor Gray) að nafni Jack sem þarf að takast á við fortíð föður síns (Grammer). Hann er sjálfur gamall fótboltaspilari og eigandi fótboltaliðsins sem Jack spilar fyrir.
Mikil átök verða þeirra á milli þegar pabbinn ákveður að klúbburinn losi sig við hann og gengur þá Jack í „óvinaliðið“.
Myndinni er leiksýrt af Jonathan Southard og líkleg til útgáfu á næsta ári.