Frankenstein skrýmslið var í könnun SFX tímaritsins valið „besta“ hryllingsveran í sígildum bíómyndum, en tímaritið gerði könnunina í tilefni af Halloween, sem hófst í gær.
Boris Karloff gerði Frankenstein skrýmslið ódauðlegt
Frankenstein skrýmslið fékk næstum þriðjung atkvæða, en Drakúla, í túlkun Bela Lugosi, þurfti að láta sér lynda annað sætið.
Þátttakendur í könnuninni gátu valið úr gömlum skrýmslum sem koma fyrir í nýju Blu-ray safni af sígildum hryllingsmyndum; Universal Monsters: The Essential Collection.
Bela Lugosi horfir soltnum augum á háls saklausrar ungrar konu.
Það var Boris Karloff sem túlkaði Frankenstein skrýmslið svona eftirminnilega, en ófreskjan kom fyrst fram í skáldsögu Mary Shelley, Frankenstein. Skrýmslið sást fyrst á hvíta tjaldinu árið 1931.
Hér er topp 8 listi SFX tímaritsins:
1. Frankenstein skrýmslið
2. Drakúla
3. Gill-man úr Creature From The Black Lagoon
4. Úlfamaðurinn ( The Wolf Man)
5. Brúður Frankensteins ( Bride of Frankenstein )
6. Ósýnilegi maðurinn ( The Invisible Man )
7. Múmían ( The Mummy )
8. Óperudraugurinn (The Phantom Of The Opera)
Eruð þið sammála þessum lista?