David Lynch minnst í Sambíóunum Kringlunni

Kvikmyndaáhugamenn fá mikið fyrir snúð sinn í Sambíóunum Kringlunni í mars því þá verður hins mikla meistara David Lynch minnst og fjórar mynda hans sýndar.

Lynch lést 15. janúar sl.

Sýningarnar verða á mánudögum en um er að ræða nokkrar af hans eftirminnilegustu kvikmyndum.

Eins og segir í tilkynningu frá Sambíóunum er um að ræða einstakt tækifæri fyrir kvikmyndaáhugamenn til að fræðast nánar um áhrif Lynch á kvikmyndagerð og hvað það er sem gerir myndir hans einstakar.

Dagskrá kvikmyndasýninga:

10. mars – The Elephant Man
Tilfinningaþrungin og áhrifamikil saga um raunverulega persónu, John Merrick, sem fæddist með alvarlega líkamlega afmyndun. Myndin, með Anthony Hopkins og John Hurt í aðalhlutverkum, fjallar um mannlegt eðli og samkennd.

The Elephant Man

The Elephant Man 1980

Drama, Æviágrip · 124 mín12 áraIMDb 8.2

Á Viktoríutímanum í London þá sér læknirinn Dr. Frederick Treves sirkussýningu sem maður að nafni Bytes stjórnar, en þar er eitt aðalsýningaratriðið vera sem kallast "The Elephant Man" eða Fílamaðurinn. Í raun og veru…

Gefa einkunn

17. mars – Wild at Heart
Ástríðufull og óhefðbundin ástarsaga með Nicolas Cage og Laura Dern í aðalhlutverkum. Myndin blandar saman ofbeldi, rómantík og dulspeki í sannkallaðan Lynch-stíl, þar sem raunveruleiki og fantasía renna saman.

Wild at Heart

Wild at Heart 1990

Drama, Spennutryllir, Glæpa · 125 mín16 áraIMDb 7.2

Siðblind móðir Lulu brjálast við tilhugsunina um að Lulu eigi í sambandi við Sailor, sem er nýsloppinn úr fangelsi. Lulu og Sailor gefa skít í skilorð Sailors, og fara til Kaliforníu. Móðir Lulu ræður leigumorðingja…

Gefa einkunn

24. mars – Blue Velvet
Dularfullur og áleitinn spennutryllir sem afhjúpar myrkar undiröldur hins friðsæla úthverfis Bandaríkjanna. Kyle MacLachlan og Isabella Rossellini fara á kostum í þessari áhrifaríku mynd.

Blue Velvet

Blue Velvet 1986

Drama, Spennutryllir, Glæpa · 120 mín16 áraIMDb 7.7

Menntaskólaneminn Jeffrey Beaumont snýr aftur til sín friðsæla heimabæjar Lumberton til að sjá um verkfæraverslun föður síns á meðan faðir hans fer á spítala. Þegar hann er á gangi á gróðursælu engi nálægt heimili…

Gefa einkunn

31. mars – Mulholland Drive
Ein af metnaðarfyllstu og flóknustu myndum Lynch, sem blandar draumkenndri framsetningu við torræða ráðgátu og magnaða frammistöðu Naomi Watts.

Mulholland Drive

Mulholland Drive 2001

Drama, Spennutryllir, Ráðgáta · 147 mín16 áraIMDb 7.9

Rita er sú eina sem lifir af hræðilegt bílslys, en missir minnið eftir slysið. Hún þvælist inn í íbúð ókunnugs manns niðri í bæ, og saga hennar blandast á undarlegan hátt saman við líf Betty Elms, ungrar konu sem er að…

Gefa einkunn

Staðsetning: Sambíóin Kringlan
Tími: Kl. 19:00

Við hvetjum alla kvikmyndaunnendur til að mæta og njóta þessara meistaraverka á stóru tjaldi.

ATH: Hér má sjá yfirlit yfir allar sígildar myndir í bíó.