10 góðar tískumyndir til að hita upp fyrir The Devil Wears Prada 2

Tískuheimurinn birtist okkur oft sem heimur fegurðar, sköpunar og glæsileika. En undir yfirborðinu leynist líka drama, metnaður, óöryggi og samkeppni um vald.

Hér eru tíu kvikmyndir sem gefa áhugaverða innsýn í tískuheiminn og eru tilvaldar til að hita upp fyrir The Devil Wears Prada 2 sem kemur í bíó í dag, fimmtudaginn 30. apríl.

10. Funny Face (1957)

Funny Face er klassísk Hollywoodmynd með Audrey Hepburn og Fred Astaire í aðalhlutverkum. Hún blandar saman tísku, tónlist og rómantík og segir frá konu sem vinnur í bókabúð en er uppgötvuð sem fyrirsæta og dregin inn í glitrandi heim tískunnar í París. Myndin er létt og falleg og sýnir tískuheiminn sem draumkenndan og nærri því ævintýralegan.
Funny Face IMDB

9. Gia (1998)

Gia segir sögu ofurfyrirsætunnar Gia Carangi og sýnir myrkari hlið tískuheimsins. Hér er engin rómantík á ferð heldur hrá og erfið frásögn af frægð, fíkn og einmanaleika. Angelina Jolie fer með aðalhlutverkið. Myndin undirstrikar þá hættu sem getur fylgt því að lifa eingöngu fyrir útlit og fegurð.

Gia

Gia 1998

Rómantík, Drama, Æviágrip · 126 mín16 áraIMDb 6.9
Horfa:HBO Max
Gefa einkunn

8. The Neon Demon (2016)

The Neon Demon er óvenjuleg og óhugnanleg mynd eftir Nicolas Winding Refn sem gerist í módelheiminum í Los Angeles. Hún dregur upp mynd af fegurð sem gjaldmiðli og sýnir hvernig samkeppni og öfund geta tekið yfir.

The Neon Demon

The Neon Demon 2016

Hrollvekja, Spennutryllir · 118 mín16 áraIMDb 6.1

Þegar ung, efnileg og upprennandi sextán ára fyrirsæta kemur til Los Angeles í leit að frama lendir hún fljótlega í hringiðu atburða þar sem viðmiðið og verðmætin eru útlitið og allir vilja fá það sem hún hefur, æsku og…

Gefa einkunn

7. Clueless (1995)

Clueless er létt og skemmtileg unglingamynd með Alicia Silverstone í aðalhlutverki sem er þekkt fyrir áberandi tísku og stíl. Hún sýnir hvernig fatnaður og stíll móta sjálfsmynd og stöðu innan vinahópa. Þótt hún fjalli ekki beint um tískuiðnaðinn er mikil tískumeðvitund meðal aðalpersónanna og spilar tískan stórt hlutverk í myndinni.

Clueless

Clueless 1995

Gaman, Rómantík · 97 mínÖllum leyfðIMDb 6.9

Cher er menntaskólastúlka í Beverly Hills og þarf að glíma við hin ýmsu vandamál er fylgja því að vera unglingur. Ytra útlit hennar bendir til þess að hún sé mjög yfirborðsleg, en í raun felur það bara þá staðreynd að…

Horfa:Síminn
Gefa einkunn

6. The Dressmaker (2015)

The Dressmaker segir frá konu sem snýr aftur í heimabæ sinn og vinnur sem fatahönnuður. Hún notar hæfileika sína til að breyta útliti fólks í bænum og vill hefna sín á þeim sem fóru illa með hana. Kate Winslet fer með aðalhlutverkið. Myndin er dramatísk með svörtum húmor og sýnir hvernig fatnaður getur haft áhrif á ímynd fólks.

The Dressmaker

The Dressmaker 2015

Drama · 118 mín12 áraIMDb 7.0

The Dressmaker gerist í smábænum Dungatar í Ástralíu á sjötta áratug síðustu aldar og segir frá fatahönnuðinum og saumakonunni Tilly Dunnage sem snýr aftur til bæjarins eftir að hafa verið send þaðan ellefu ára gömul í…

Gefa einkunn

5. Zoolander (2006)

Zoolander er beitt satíra á tískuheiminn með Ben Stiller í aðalhlutverki, sem einnig leikstýrir myndinni. Greina má áhrif frá Mel Brooks í húmornum. Karakterar, útlit og söguþráður eru ýktir upp í miklu gríni. Þrátt fyrir það hittir myndin oft naglann á höfuðið þegar kemur að yfirborðsmennsku og sjálfhverfu í bransanum.

Zoolander

Zoolander 2001

Gaman · 90 mín6 áraIMDb 6.5

Derek Zoolander er eins sjálfumglaður og hægt er að verða, enda vinsælasta karlmódel sinnar kynslóðar og hefur ekki í hyggju að gefa það eftir. Það verða honum því gífurleg vonbrigði þegar stjarna hins unga og ljóshærða…

Gefa einkunn

4. Blow-Up (1966)

Blow Up er klassísk mynd eftir Michelangelo Antonioni sem fylgir tískuljósmyndara í London. Hún gefur innsýn í tísku og listheim sjöunda áratugarins og snýst um atburðarás sem hefst þegar hann telur sig hafa fangað morð á filmu.

Blow-Up

Blow-Up 1966

Drama, Spennutryllir, Ráðgáta · 111 mínÖllum leyfðIMDb 7.4

Tískuljósmyndari tekur óvart mynd af morði þegar hann er að fylgjast með pari í garði.

Gefa einkunn

3. Phantom Thread (2017)

Phantom Thread er mynd eftir Paul Thomas Anderson sem gerist í heimi hátískunnar í London. Daniel Day-Lewis fer með aðalhlutverkið sem fatahönnuður sem lifir fyrir fullkomnun í starfi sínu. Myndin sýnir hvernig sköpun, metnaður og þráhyggja fléttast saman í heimi þar sem smáatriði skipta öllu máli – jafnvel of miklu máli.

Phantom Thread

Phantom Thread 2017

Rómantík, Drama · 130 mín12 ára

Phantom Thread gerist í London í kringum 1960 þar sem við kynnumst klæðskeranum Reynolds Woodcock sem hefur sérhæft sig í viðskiptum við hástéttina í borginni og gengið vel. Reynolds er einstaklega agaður maður og…

Gefa einkunn

2. House of Gucci (2021)

House of Gucci segir frá fjölskyldu, völdum og svikum innan eins frægasta tískuveldis heims. Lady Gaga og Adam Driver fara með aðalhlutverkin. Myndin er dramatísk túlkun á sögu Gucci fjölskyldunnar og fer stundum frjálslega með staðreyndir. Lady Gaga fékk þó mikið lof fyrir leik sinn. Myndin sýnir hvernig metnaður og peningar geta haft áhrif á sambönd og örlög fólks.

House of Gucci

House of Gucci 2021

Drama, Spennutryllir, Glæpa · 157 mín12 áraIMDb 6.6

Sagan af fyrirætlunum Patrizia Reggiani, fyrrum eiginkonu Maurizio Gucci, um að myrða eiginmann sinn, barnabarn hins þekkta tískuhönnuðar Guccio Gucci. Sagan spannar þrjá áratugi af ástum, svikum, hnignun, hefnd og að…

Gefa einkunn

1. The Devil Wears Prada (2006)

The Devil Wears Prada er líklega sú mynd sem flestir tengja við tískuheiminn. Meryl Streep og Anne Hathaway fara með aðalhlutverkin, þar sem Streep leikur áhrifamikinn ritstjóra tískutímarits sem krefst fullkomnunar í hvívetna. Myndin fylgir ungri konu sem fær starf í þessum harða heimi og þarf að læra hratt hvernig hlutirnir virka. Hún sýnir bæði glamúrinn og kröfurnar sem fylgja tískuheiminum og hversu langt fólk er tilbúið að ganga til að ná árangri.

The Devil Wears Prada

The Devil Wears Prada 2006

Gaman, Drama · 109 mín9 áraIMDb 7.0

Sagan gerist í New York. Hin unga, saklausa og nýútskrifaða úr blaðamannaskóla, Andrea Sachs, er ráðin í vinnu sem önnur aðstoðarkona hinnar valdamiklu en fáguðu Miranda Priestly, hinnar miskunnarlausu ritstýru Runway…

Gefa einkunn