
Úr kvikmyndinni A Trip to the Moon (1902)
Í ljósi þess að rómantíska gamanmyndin Fly Me to the Moon lendir í kvikmyndahúsum bráðlega, er vert að skoða hvaða fleiri bíómyndir eru í boði þar sem sjálft tunglið er í brennidepli.
Athugaðu hversu margar þú hefur séð.

Airplane II: The Sequel 1982
Nokkur ár eru liðin síðan Ted Striker bjargaði á hetjulegan hátt ótal mannslífum með því að forða flugslysi flugs 209, eftir að flugáhöfnin fékk matareitrun. Nú vinnur hann sem prufuflugmaður fyrir tunglflaug, en lendir…

The Adventures of Pluto Nash 2002
Myndin gerist á tunglinu árið 2087. Eftir að vinsæll næturklúbbur Pluto Nash er brenndur til grunna fara Pluto og félagar hans að leita að vísbendingum um allt Tunglið um hver standi á bakvið voðaverkið. Pluto, ásamt…

Moon 2009
Geimfarinn Sam Bell hefur eytt þremur árum í geimstöð á tunglinu án nokkurs félagsskapar, þar sem hann fylgist með að steinefnavinnsla sem framkvæmd er af risastórum vélum, gangi eðlilega fyrir sig. Smám saman fer…

Despicable Me 2010
Innan um hvítmáluð grindverk, vel snyrta garða og reisuleg úthverfahús leynist eitt svart hús í dauðum gróðri í kring. Þar býr hinn óyndislegi Gru en það sem nágrannarnir vita ekki er að undir húsinu er risastór…

Independence Day: Resurgence 2016
Myndin gerist 20 árum eftir atburði fyrstu myndarinnar, metsölumyndarinnar Independence Day, og segir frá því þegar geimverurnar koma aftur til að ná yfirráðum hér á jörðu, af enn meira afli en síðast, en Jarðarbúar…

First Man 2018
Sannsöguleg mynd um líf geimfarans Neil Armstrong sem fyrstur steig fæti á tunglið, en myndin gerist í aðdraganda geimferðarinnar, 1961 -1969. Fjallað er um fórnirnar sem þurfti að færa í þessari hættulegustu ferð í…









