Eftir miklar vangaveltur hefur það nú verið staðfest af framleiðendum myndarinnar Aquaman, eða Vatnsmaðurinn, að leikstjóri Fast and Furious 7, James Wan, muni leikstýra myndinni. Myndin á að vera einstök, þ.e. ekki er gert ráð fyrir seríu af myndum um þessa DC Comics ofurhetju. Með titilhlutverkið fer Jason Momoa.
Wan hefur gert nokkrar frábærar hryllingsmyndir, eins og Saw, Insidious og The Conjuring, og er sem stendur við tökur á The Conjuring 2.
Það hjálpaði til þegar Warner Bros tók ákvörðunina um að ráða leikstjórann í starfið að Fast and the Furious 7 er orðin næst tekjuhæsta mynd í heiminum í ár á eftir Avengers: Age of Ultron, með 1,5 milljarð Bandaríkjadala í tekjur alls.
Aquaman fjallar um konung hinnar týndu borgar Atlantis, sem getur lifað neðansjávar, en bylting er í aðsigi og Aquaman er þar í eldlínunni.
Myndin kemur í bíó sumarið 2018, nánar tiltekið 27. júní.