Aaron Taylor-Johnson aðalleikari Kraven the Hunter sem kemur í bíó á morgun, fimmtudag, segir í nýju myndbandi að kvikmyndin sé saga um hvernig glæpamaður verður til.
Í myndbandinu kemur Russell Crowe einnig fram sem grimmur faðir Kraven, Nikolai Kravinoff . Hann segir í myndbandinu: „Sonur sæll, við erum rándýr.“
Og bætir við eftir einn skotbardagann: „Þetta snýst um völd.“










Taylor-Johnson heldur áfram og segir að þeir hafi gert bófamynd, bannaða innan 16 og bætir við að um staka mynd sé að ræða í ofurhetjuheimi Sony.
„Þú ert alveg nákvæmlega eins og faðir okkar,“ segir bróðir Kraven á einum stað í myndbandinu.
Gamaldags bófamynd
Leikstjórinn, J.C. Chandor, segir að myndin sé fjölskyldusaga en einnig gamaldags bófamynd. Hann segir að myndin sé tekin upp á alvöru tökustöðum, í öllum veðrum.
Taylor-Johnson segir að hasaratriðin séu ekta. Hann hlaupi berfættur á götunni, slengi mönnum í golfið og hlaupi upp veggi.

Kraven the Hunter 2023
Eftir að hafa orðið fyrir árás ljóns öðlast Sergei Kravinoff yfirnáttúrulega og dýrslega krafta. Flókið samband hans við grimman föður sinn ýtir honum út á braut hefndar með hrottalegum afleiðingum. Á sama tíma gerir…
Leikstjórinn segir að áhorfendur haldi með Kraven þó að hann sé hálf dýrslegur í aðförum sínum og myrði menn með hrottalegum hætti. „Sú staðreynd að myndin átti að vera bönnuð innan 16 gerði mér kleift að vera heiðarlegri í mínum störfum,“ segir Chandor.
„Hann er ekki ofurhetja, hann er maður sem hefur hlotið þjálfun og býr yfir hæfileikum sem veiðimaður og drápari,“ segir Aaron Taylor-Johnson að lokum.
Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan:

Netflix



