Þegar kemur að því að velja topplista yfir bestu Jólamyndir þessarar aldar, þeirrar 21., þarf að líta til mynda sem hafa hreyft við áhorfendum með hátíðleika, góðum söguþræði og getu til að fanga hinn sanna anda Jólanna.

Listinn hér að neðan inniheldur nokkuð ólíkar myndir, bæði innilegar og hlýjar fjölskyldumyndir og sömuleiðis myndir sem fjalla með beinum hætti um inntak Jólahátíðarinnar. Allar hafa þær öðlast sinn sess í bíósögunni sem sannkallaðar Jólamyndir sem koma öllum í Jólaskap.
Kíktu á listann hér fyrir neðan:

Elf 2003
Buddy var á munaðarleysingjahæli sem barn en stalst í burtu í poka jólasveinsins og endaði á norðurpólnum. Seinna, þegar hann er orðinn fullvaxinn maður, sem óvart var alinn upp af álfum, þá leyfir jólasveinninn honum…

Love Actually 2003
Hér segir frá nokkrum ólíkum persónum sem þekkjast og tengjast mismikið sín á milli en eiga það allar sameiginlegt að vera að leita að hinni einu sönnu ást. En eins og allir vita eru vegir ástarinnar órannsakanlegir og…

The Polar Express 2004
Myndin fjallar um ungan dreng sem fer um borð í kraftmikla töfralest á aðfangadagskvöld á leið til norðurpólsins og heim til jólasveinsins. Það sem fylgir í kjölfarið er ævintýri um dreng sem efast, en lendir í miklum…

Arthur Christmas 2011
Artúr bjargar jólunum afhjúpar loksins leyndarmálið sem öll börn hafa velt fyrir sér; hvernig í ósköpunum fara jólasveinarnir að því að afhenda allar þessar gjafir á einni nóttu? Skýringin: Úthugsað skipulag og…

The Holiday 2006
Iris er ástfangin af manni sem er að fara að giftast annarri konu. Hinum megin á hnettinum áttar Amanda sig á því að sambýlismaður hennar hefur verið henni ótrúr. Konurnar hafa aldrei hist og búa langt í burtu frá…

A Christmas Carol 2009
Jólasaga Charles Dickens, í nýjum búningi. Þessi sígilda saga segir frá Ebenezer Scrooge , bitrum gömlum manni sem þolir ekki jólin og allt tilstandið í kringum þau. Bæjarbúum er illa við hann og hann er ekkert alltof…

The Christmas Chronicles 2018
Saga systkinanna Kate og Teddy Pierce, en þau ætla að reyna að taka ljósmynd af Jólasveininum, en sú tilraun breytist í óvænta ferð sem flest börn dreymir um.
Netflix






