Sandra Bullock er sögð líklegust til að hreppa hlutverk fröken Hannigan í væntanlegri endurgerð söngvamyndarinnar Annie.
Hannigan er grimmur stjórnandi munaðarleysingjahælis þar sem Annie á heima.
Kvikmyndin Annie kom út 1982 í leikstjórn John Houston og var byggð á samnefndum söngleik á Broadway sem var settur á fjalirnar 1977.
Ef Bullock leikur í myndinni fetar hún fótspor leikkvenna á borð við Anne Hathaway, Reese Witherspoon og Renée Zellweger sem hafa óvænt spreytt sig á sönghlutverkum.
Rapparinn Jay-Z, Will Smith og Jada Pinkett Smith munu framleiða myndina.
Jamie Foxx og Quvenzhané Wallis hafa þegar tekið að sér hlutverk í Annie.