Ryan Gosling er heldur betur krambúleraður á nýju kynningarplakati Only God Forgives. Hann lítur út fyrir að hafa lent í heljarinnar barsmíðum.
Myndin fjallar um Julian (Gosling) sem rekur Thai-box klúbb sem yfirskyn fyrir eiturlyfjasmygl fjölskyldu sinnar. Móðir hans Jenna (Kristin Scott Thomas) neyðir hann til að finna og drepa þann sem bar ábyrgð á dauða bróður hans.
Leikstjóri Only God Forgives er Nicolas Winding Refn sem leikstýrði einmitt Gosling í Drive, sem mörgum þótti ansi vel heppnuð.
Myndin er væntanleg í bíó næsta vor.