Searching for Sugar Man (2012)
"He was a star in the making, who vanished without a trace. But on the other side of the world, he inspired a generation."
Sixto Rodriguez var efnilegur tónlistarmaður frá Detroit sem tókst að heilla tvo plötuútgefendur upp úr skónum árið 1968.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →
Bönnuð innan 12 ára
Vímuefni
BlótsyrðiSöguþráður
Sixto Rodriguez var efnilegur tónlistarmaður frá Detroit sem tókst að heilla tvo plötuútgefendur upp úr skónum árið 1968. Þeir töldu sig hafa fundið nýjan Bob Dylan og gáfu út plötu hans, Cold Fact. Platan seldist hins vegar hörmulega og Rodriguez hvarf af sjónarsviðinu. Á meðan sögur gengu um versnandi geðheilsu Rodriguez, og um dramatískt sjálfsmorð, varð hann að óvæntri stórstjörnu hinum megin við Atlantshafið… í Suður-Afríku. Searching for Sugar Man hefur farið sigurför um heiminn og unnið til fjölda verðlauna, meðal annars áhorfendaverðlaunin á hinni virtu Sundance-kvikmyndahátíð. Leikstjórinn, Malik Bendjelloul, ferðaðist til Suður-Afríku árið 2005 og heyrði sögur af Sixto Rodriguez. Þótti honum þetta vera ein besta saga sem hann hafði heyrt, og ákvað í kjölfarið að gera kvikmynd um leit sína að Rodriguez. Hinn virti kvikmyndagagnrýnandi Roger Ebert gaf Searching for Sugar Man fullt hús, og sagði myndina „vera til, því við þurfum á því að halda að hún sé til.“
Svipaðar myndir
Myndbönd
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar



Álit notenda (1)
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráFrábær mynd
Þessi mynd er einn sá óvæntasti gullmoli sem ég hef séð í langan tíma. Maður hlær og grætur til skiptis, enda er sagan svo ótrúleg og sérstök að maður hefur sjaldan heyrt annað eins…
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!
Umsagnir á TMDB
CinemaSerf ★ 7.0/10Framleiðendur

Verðlaun
Vann bæði Óskarsverðlaunin og BAFTA verðlaunin sem besta heimildarmynd ársins. Fjöldi annarra verðlauna.
































