Babies (2010)
"Everybody loves..."
Babies er heimildarmynd sem með nokkuð sérstakt umfjöllunarefni, en hún fylgir fjórum börnum frá fæðingu til eins árs afmælis síns.
1 einkunn á Kvikmyndir.is
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →
Öllum leyfðSöguþráður
Babies er heimildarmynd sem með nokkuð sérstakt umfjöllunarefni, en hún fylgir fjórum börnum frá fæðingu til eins árs afmælis síns. Börnin í myndinni eru víðs vegar að úr heiminum og búa þar af leiðandi við afar ólíkar aðstæður. Þessi fjögur börn eru einstök hver um sig, en það fyrsta, strákurinn Ponijao, fæðist í borginni Opuwo í Namibíu og býr við afar erfiðar aðstæður í einu af fátækari löndum heims. Annað barnið, Mari sem býr í stórborginni Tokyo í Japan, býr við allt aðrar aðstæður í einni háþróuðustu og fjölmennustu borg veraldar. Bayar, sem fæðist í hinni afskekktu borg Bayanchandmani í Mongólíu, býr við jafnvel frumstæðari aðstæður en Ponijao og Hattie, sem er frá San Francisco í Bandaríkjunum, kemur í heiminn á stað ólíkum öllum hinum stöðunum. Vel er fylgst með þroska þeirra þetta fyrsta ár ævi sinnar og þeim öru breytingum sem verða á þeim dag frá degi. Skoðað er hvað hefur mest áhrif á þau í umhverfi sínu, vandamálunum sem þau standa frammi fyrir er varpað upp sem og áhrifunum, bæði góðum og slæmum, sem þau hafa á alla aðstandendur sína.
Svipaðar myndir
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Álit notenda (1)
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráKrúttleg en vægast sagt einhæf
Það pirrar mig þegar ég stíg útaf kvikmynd og hugsa að ég hefði alveg eins getað fengið sömu upplifun með því að skoða helling af YouTube-vídeóum. Þar hefði bara dugað að skrifa…
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!
Framleiðendur






















