Taken 3
2015
Frumsýnd: 9. janúar 2015
It Ends Here
109 MÍNEnska
13% Critics 26
/100 Þegar eiginkona Bryans Mills er myrt og hann sjálfur er grunaður um morðið neyðist hann til að flýja og um leið grípa til sinna ráða. Liam Neeson mætir á ný í kvikmyndahúsin þann 9. janúar í hlutverki leyniþjónustumannsins fyrrverandi Bryans Mills sem eins og allir vita sem sáu fyrri Taken-myndirnar er ekkert lamb að leika sér við þegar hann tekur sig... Lesa meira
Þegar eiginkona Bryans Mills er myrt og hann sjálfur er grunaður um morðið neyðist hann til að flýja og um leið grípa til sinna ráða. Liam Neeson mætir á ný í kvikmyndahúsin þann 9. janúar í hlutverki leyniþjónustumannsins fyrrverandi Bryans Mills sem eins og allir vita sem sáu fyrri Taken-myndirnar er ekkert lamb að leika sér við þegar hann tekur sig til. Eftir hremmingarnar sem Bryan Mills gekk í gegnum í fyrri myndunum tveimur telur hann sig nú geta varpað öndinni léttar og snúið sér að því sem hann hefur mestan áhuga á; velferð eiginkonu sinnar Lenore og dóttur þeirra, Kim. Sá draumur snýst hins vegar upp í martröð þegar hann kemur eitt kvöldið að Lenore látinni á heimili þeirra. Hún hefur verið myrt og það næsta sem Bryan veit er að hann er sjálfur grunaður um að hafa orðið henni að bana. Þar með neyðist hann til að leggja á flótta undan bæði lögreglunni, FBI og fyrrverandi félögum sínum í CIA sem eru undir stjórn hörkutólsins Francks Dotzler, en hann veit upp á hár hvers Bryan er megnugur. Á flóttanum þarf Bryan svo einnig að komast að því hver myrti Lenore og hvers vegna og í þeirri rannsókn uppgötvar hann að morðingjarnir hafa engan veginn sagt sitt síðasta og ætla sér einnig að myrða Kim ...... minna