Kidnapping Mr. Heineken
2015
(Kidnapping Freddy Heineken)
It was the Perfect Crime Until they Got away with it.
90 MÍNEnska
19% Critics 33
/100 Forsagan að skipulagningu, framkvæmd, eftirmála og að lokum endalokum mannræningja bjórmógúlsins Alfred "Freddy" Heineken, en greitt var hæsta lausnargjald sem nokkurn tímann hefur verið greitt fyrir einstakling, í þessu máli. Þann 9. nóvember árið 1983 var Alfred Heineken, eiganda bjórveldisins, rænt fyrir framan höfuðstöðvar fyrirtækisins í Amsterdam.... Lesa meira
Forsagan að skipulagningu, framkvæmd, eftirmála og að lokum endalokum mannræningja bjórmógúlsins Alfred "Freddy" Heineken, en greitt var hæsta lausnargjald sem nokkurn tímann hefur verið greitt fyrir einstakling, í þessu máli. Þann 9. nóvember árið 1983 var Alfred Heineken, eiganda bjórveldisins, rænt fyrir framan höfuðstöðvar fyrirtækisins í Amsterdam. Ránið var framkvæmt af fjórum mönnum sem höfðu ásamt fimmta manninum skipulagt það í tvö ár áður en þeir létu til skarar skríða. Í myndinni er farið yfir málið frá upphafi til enda, allt frá því að hugmyndin kom upp í kolli forsprakka mannræningjanna þar til þeir voru dæmdir fyrir glæpinn, en Heineken-fjölskyldan ákvað að greiða lausnarféð, þvert á vilja lögreglunnar, sem um leið varð hæsta upphæð sem nokkurn tíma hafði verið greidd í mannránsmáli.... minna