How I Live Now
2013
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Love will lead you home.
101 MÍNEnska
66% Critics 57
/100 Bandarísk stúlka sem er í sumarfríi uppi í sveit í Englandi með fjölskyldu sinni, þarf að fela sig og berjast fyrir lífi sínu þegar styrjöld brýst út. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Meg Rosoff og gerist í Bretlandi í nálægri framtíð þegar þjóðin er lent í stríði. Ronan leikur Daisy, bandaríska táningsstúlku sem fer til Bretlands til að... Lesa meira
Bandarísk stúlka sem er í sumarfríi uppi í sveit í Englandi með fjölskyldu sinni, þarf að fela sig og berjast fyrir lífi sínu þegar styrjöld brýst út. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Meg Rosoff og gerist í Bretlandi í nálægri framtíð þegar þjóðin er lent í stríði. Ronan leikur Daisy, bandaríska táningsstúlku sem fer til Bretlands til að búa með frænku sinni og frændfólki uppi í sveit. Þegar frænka hennar er föst í Noregi og ónefndur her ræðst inn í England, þá verða Daisy og frændsystkini hennar að bjarga sér án fullorðna fólksins í útópískri framtíðarsýn. En þegar hermenn koma á bóndabæinn og skipta upp unglingahópnum, þá verður Daisy vitni að hryllingi hersetunnar, á sama tíma og hún reynir að ná fjölskyldunni saman á ný.... minna