One Direction: This is Us
2013
(1D)
Ekki aðgengileg á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 6. september 2013
Experience their lives on the road / A motion picture event.
92 MÍNEnska
63% Critics
79% Audience
49
/100 Strákabandið One Direction hefur notið fádæma vinsælda
allt frá stofnun og í myndinni This Is Us fá aðdáendur einstaka
innsýn í sögu sveitarinnar og líf strákanna.
Það var vorið 2010 sem þeir Niall Horan, Zayn Malik, Liam
Payne, Harry Styles og Louis Tomlinson sóttu hver í sínu lagi
áheyrnarprufur í bresku X-Factor-þáttunum. Allir komust þeir
áfram en... Lesa meira
Strákabandið One Direction hefur notið fádæma vinsælda
allt frá stofnun og í myndinni This Is Us fá aðdáendur einstaka
innsýn í sögu sveitarinnar og líf strákanna.
Það var vorið 2010 sem þeir Niall Horan, Zayn Malik, Liam
Payne, Harry Styles og Louis Tomlinson sóttu hver í sínu lagi
áheyrnarprufur í bresku X-Factor-þáttunum. Allir komust þeir
áfram en féllu út þegar kom að vali í svonefndan „Judges
House“-hluta keppninnar.
Þá lagði einn dómendanna, Nicole Sherzinger, það til að þeim
yrði gefinn kostur á að sameinast og fara áfram sem eitt band í
„groups“-flokknum. Strákarnir þáðu að sjálfsögðu það tækifæri
og er skemmst frá því að segja að þeir smullu strax saman sem
ein heild, ekki bara sem hljómsveit heldur einnig sem vinir og
bestu félagar.
Það kom síðan í hlut Simons Cowell að þjálfa „grúppurnar“ í
þættinum og frammistaða piltanna í fyrsta skipti sem þeir sungu
fyrir hann sannfærði hann um að hleypa þeim áfram. Þar með var
tónninn sleginn og One Direction, eins og Harry Styles lagði til
að bandið myndi heita, hóf ótrúlega sigurgöngu sem sér ekki
fyrir endann á ...... minna