Pennies from Heaven
1981
Fannst ekki á veitum á Íslandi
There's a world on both sides of the rainbow where songs come true and every time it rains, it rains...
108 MÍNEnska
83% Critics 64
/100 Myndin er gerð eftir þekktri breskri stuttseríu í sjónvarpi, og nú látin gerast í Bandaríkjunum á tímum kreppunnar snemma á tuttugustu öldinni. Myndin segir frá því hvernig vinsæl tónlist mótaði og speglaði hugsanir fólks á þessum erfiðu tímum. Arthur Parker selur nótnablöð og telur sjálfur að hann eigi mjög auðvelt með að sjá hvaða tónlist... Lesa meira
Myndin er gerð eftir þekktri breskri stuttseríu í sjónvarpi, og nú látin gerast í Bandaríkjunum á tímum kreppunnar snemma á tuttugustu öldinni. Myndin segir frá því hvernig vinsæl tónlist mótaði og speglaði hugsanir fólks á þessum erfiðu tímum. Arthur Parker selur nótnablöð og telur sjálfur að hann eigi mjög auðvelt með að sjá hvaða tónlist muni slá í gegn, og vill opna eigin verslun. En hann fær ekkert lán í bankanum og kona hans Joan, sem á sparifé sem faðir hennar erfði hana að, neitar að láta hann fá fé. Arthur hefur einnig ríka þörf fyrir kynlíf, en Joan hefur ekki þá sömu þörf. Þegar Arthur er í söluferð, þá hittir hann Eileen, feiminn grunnskólakennara sem er jafn áköf í kynlíf og Arthur. Þau hefja ástarsamband, sem leiðir til harmleiks fyrir þau bæði. ... minna