Led Zeppelin – Celebration Day

Led Zeppelin – Celebration Day (2012)

"20 milljónir manns reyndu, en aðeins 18 þúsund fengu. "

2 klst 4 mín2012

20 milljónir manns reyndu, en aðeins 18 þúsund fengu.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
Öllum leyfðÖllum leyfð

Söguþráður

20 milljónir manns reyndu, en aðeins 18 þúsund fengu. Ógleymanleg kvöldstund sem átti sér stað 10 desember 2007. Fyrir fimm árum, kom ein mesta rokksveit sögunnar, Led Zeppelin saman til að spila á tónleikum. Og það eftir 27 ára hlé eða frá því sveitin hætti árið 1980. Tónleikarnir voru ótrúlegir þar sem þeir Jimmy Page, Robert Plant, John Paul Jones og Jason Bonham (sonur upprunalega trommarans John Bonham) voru í banastuði í rúmar 2 klukkustundir. Tónleikarnir sem fóru fram í O2 hljómleikahöllinni í London voru teknir upp og hafa verið vel geymdir. Þar til nú, þegar tónleikarnir eru sýndir í vel völdum bíóhúsum útum allan heim. Hérlendis eru tónleikarnir sýndir aðeins einu sinni í Háskólabíói. - Led Zeppelin hafa selt yfir 300 milljónir eintaka af plötum sínum, en einungis 5 aðrir geta státað af hærri sölutölum. - Sveitin hefur unnið til yfir 30 stórverðlauna, þar á meðal til 4 Grammy verðlauna. - Tónleikarnir voru valdir „Rokk atburður ársins“ af tónlistarblaðinu Classic Rock. - Lagalisti tónleikanna telur 16 lög. Stórsmellir eins og Whole Lotta Love, Black Dog, Kashmir, Stairway To Heaven og fleiri. - Bíóviðburðurinn er sýndur með Dolby 5.1 hljóði sem unnið var af hljómsveitinni sjálfri. Söngur: Robert Plant Gítar: Jimmy Page Bassi: John Paul Jones Trommur: Jason Bonham

Svipaðar myndir

Aðalleikarar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!