A Little Bit of Heaven
2011
Ekki aðgengileg á veitum á Íslandi
Hold on to Love
106 MÍNEnska
4% Critics
52% Audience
14
/100 Marley er frjálslynd, gáfuð og glaðlynd kona sem hefur fram að þessu
haft góð tök á lífi sínu. Hún er í góðri vinnu á auglýsingastofu og nýtur
virðingar bæði vinnufélaga sinna og vina. Það er ekki ofsagt að hún
sé hrókur alls fagnaðar hvar sem hún kemur.
Eins og gefur að skilja hefur Marley átt í nokkrum samböndum í gegnum
árin. Hún hefur... Lesa meira
Marley er frjálslynd, gáfuð og glaðlynd kona sem hefur fram að þessu
haft góð tök á lífi sínu. Hún er í góðri vinnu á auglýsingastofu og nýtur
virðingar bæði vinnufélaga sinna og vina. Það er ekki ofsagt að hún
sé hrókur alls fagnaðar hvar sem hún kemur.
Eins og gefur að skilja hefur Marley átt í nokkrum samböndum í gegnum
árin. Hún hefur þó ætíð forðast að skuldbinda sig og hefur aldrei
haft áhuga á að vera í sambúð með öðrum en hundinum sínum,
Walter. Af þessum sökum hefur hún heldur aldrei upplifað það að
vera raunverulega ástfangin af karlmanni.
Núna þegar Marley verður ljóst að ef til vill eigi hún ekki nema nokkra
mánuði ólifaða breytist allt, ekki síst eftir að hún verður yfir sig hrifin
af lækninum sem færði henni vondu fréttirnar ...... minna