Aðalleikarar
Leikstjórn
The Final Frontier er versta martröð Trekkara. En ekki mín. William Shatner sígur í leikstjórastólnum. Myndin er hreint gubb á fyrri helmingnum en batnar verulega á hinum seinni. Row row row your boat virkaði á mig.
Mér fannst þessi mynd svona la-la, og þetta er tvímælalaust sísta Star Trek myndin fram að þessu. Í þessari mynd er dálítið verið að fjalla um hið persónulega samband á milli áhafnarmeðlima Enterprise eins og það hefur þróast í gegnum árin, en hins vegar er ef til vill erfitt fyrir ekki-Trekkara að hafa eitthvað gaman af því. Leikurinn og handritið er ekki með því besta, því miður. Leitin að Guði var hálf kjánaleg (það hefði verið hægt að vinna miklu betur með þá hugmynd), og þetta með að láta hálfbróður Spocks dúkka upp si svona var alveg út í hött. En samt sem áður er þessi mynd ekki alvond; mér fannst row, row, row your boat atriðið skondið, en besta atriðið fannst mér þó þegar Uhura tók afríska dansinn. En semsagt, það er alveg hægt að horfa á þessa mynd ef maður hefur ekkert annað að gera.
Star Trek nær botni í þessari einstaklega lélegu mynd sem leikstýrð er af sjálfum kafteininum William Shatner. Í henni leita Kirk og félagar að sjálfum guði og finna hann, ja svona eða þannig. Myndin er illa skrifuð, illa leikstýrt og illa leikin og örugglega óska flestir Trekkarar að þessi mynd hefði aldrei verið gerð. Bara tilhugsunin um Spock að syngja Row, row, row you boat er nóg til að maður fái martraðir.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
David Loughery, William Shatner, Harve Bennett
Kostaði
$30.000.000
Tekjur
$70.200.000
Vefsíða:
www.startrek.com/startrek/view/series/MOV/005/index.html
Aldur USA:
PG