Náðu í appið
Bönnuð innan 6 ára

Nacho Libre 2006

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Frumsýnd: 15. september 2006

He's not lean. He's not mean. He's nacho average hero.

92 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 40% Critics
The Movies database einkunn 52
/100

Nacho er kokkur í klaustri, sem starfar við það að gefa munaðasum börnum að borða. Þegar nunnan Encarnación kemur í klaustrið, þá sér Nacho að eina leiðin til að vinna ástir hennar og bjarga börnunum, er að breyta sér á nóttunni í Luchador fjölbragðaglímukappann Nacho Libre.

Aðalleikarar


Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja... Þessi mynd er í rauninni hörmung, söguþráðurinn er lítill en ömurlegur. Venjulega myndi ég segja að Jack Black sé fyndinn en ekki í þessari mynd. Myndin er um munk sem er með glímu á heilanum (Jack Black)og hann er á svona munaðarleysingjar hæli og er kokkur. Málið er að þetta er svona mynd sem góði karlinn er góður (eins og flestar myndir) en samt er þetta svo glatað alltsaman og ég mæli ALLS EKKI með þessari mynd.


Brandararnir er notaðir aftir og aftur. Þeir eru ekki fyndnir til að byrja með og treystu mér, þeir verða ekki skárri. Ég brosti ekki einu sinni þegar ég horfði á þessa mynd. Hún á ekki einu sinni skilið þessa enga stjörnu sem ég gef henni.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Ég er ekki viss hvað á að kalla þessa mynd, fáranleikamynd mögulega. Nacho Libre er venjuleg ´overcoming obstacles´ hetjumynd aðeins nú er það hinn skemmtilega feiti Jack Black að leika hálf Skandinavískan og hálf Mexíkóskan munk í Kaþólsku klaustri, hann hefur þráð að verða glímukappi síðan á ungum aldri, og loks fær það tækifæri og ætlast til þess að nota peninginn til þess að hjálpa munaðarleysingjunum í klaustrinu. Með hjálp hjá heimilislausum fáranlingi sem hefur hrossatennur, og traust hjá mjög aðlaðandi nunnu þá verður hann einn aðalkeppinauturinn í átt að sigri. Myndin er skondin á pörtum, jafnvel fyndin stundum, en innihaldið virkar mjög veikt fyrir lengdina á myndinni, og húmorinn var ekki alveg að halda myndinni uppi. Einn aðaltilgangur myndarinnar er þetta tilgangsleysi sem ræður ríkjum fyrir húmorinn, án þess hefði myndin líklegast verið frekar leiðinleg. Ég gekk út eftir myndina og fann ekki fyrir neinu, Nacho Libre er tilgangslaust rugl, en miðað við það, þá var hún allt í lagi sem einfalt áhorf.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei

Ég er bara helvíti ánægður með þessa mynd. Jared Hess stóð sig frábærlega. Ekki eins og í Napoleon Dynamite, það var hræðileg mynd. Nacho Libre hefur uppá margt á að bjóða, eins og húmor og náttúrulega einn fyndnasta grínleikara í heimi, Jack Black. Æðisleg mynd sem á 100% skilið að fá 3 og 1/2 stjörnu í einkunn.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn