Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Virkilega óathyglisverð mynd sem er ekki þess verð að sjá. Söguþráður alveg út í hött, leikur hjá leikurunum hræðilegur og eiginlega flest allt við þessa mynd lélegt. Forðist þessa.
Mér fannst þetta bara geðveik mynd skemmtilegur söguþráður aðeins of líkið The Ring myndinni en mér finnst þessi mynd mjög góð! Ég mæli mikið meðhenni!
Það er alveg greynilegt að handritshöfundar þessarar myndar eru undir alltof sterkum áhrifum frá Ringo myndunum (allavega þeirri fyrstu). Leikurinn og handritið er aðeins á léttu plani og nær ekki að toppa það besta sem að maður hefur séð, en samt er forvitnin að reka mann áfram. Var bara að horfa á sjónvarpið eitt kvöld og datt inn á blábyrjunina og ákvaða að horfa til enda. Myndatakan er nokkuð góð, svo og líka umhverfi og sviðsmynd. Hinsavegar finnst mér Stephen Rea alveg afspyrnu leiðinlegur leikari, sama hversu góður hann kann að vera. Ekki nenni ég að horfa á hana aftur og ég mæli svosem ekki með henni, en ég ætla ekki heldur að stoppa neinn í að horfa.
Ég vildi gjarnan gefa þessari frumlegu hryllingsmynd hærri einkunn, en sökum lélegrar leikstjórnar, mjög ruglingslegs og samhengislauss söguþráðar og þeirrar sorglegu staðreyndar að myndinni tókst ekki að gera mig spennta eða gefa mér hroll (eins og væntanlega var markmiðið) get ég aðeins gefið eina og hálfa stjörnu. Hefði ég haft á tilfinningunni að myndin hafi verið mislukkuð frá fyrstu hugdettu gæfi ég henni lægri einkunn, en staðreyndin er í raun sú að illa er farið með mjög frumlega og áhugaverða hugmynd sem liggur að baki. -Annars vegar er eins og sagan hafi verið skrifuð jafnóðum og myndin var gerð í þvílíkum flýti, -hins vegar er eins og sá sem skrifaði hana hafi ekki getað hugsað neina hugsun eða atriði til enda. Ekki var endirinn til að bæta það. Því miður á þetta sér allt of oft stað í nútíma kvikmyndagerð og get ég ekki mælt með þessari mynd fyrir aðdáendur góðra hryllingsmynda.
Heimasíða sem...drepur (??)
Guð minn góður!! Ég ætla ekki einusinni að eyða of mörgum í þetta rusl. Helsta athugasemdin mín er sú að þetta er eitthvað það almesta, alleiðinlegasta og fáránlegasta rugl sem ég hef nokkurn tímann séð.
Söguþráðurinn er eins og hann sé endurunninn úr handritinu að upprunalegu Ring-myndinni. Hann er líka bara svo óspennandi, heimskulegur og klisjukenndur að það er óhjákvæmalegt að líta á úrið annað slagið. Og ég tala nú ekki einu sinni um leikinn, og ekki síst leikstjórnina... Hvílík sóun á tíma hjá þessu fólki. FearDotCom er bara vægast sagt HÖRMUNG þegar á heildina er litið. Það er m.a.s. nóg að minnast bara á það að leikstjórinn sé sá sami og gerði meðalmorið House on Haunted Hill, og auk þess skrifaði hann þær báðar Supernova og Universal Soldier 2, og það segir bókstaflega allt um ''gæði'' þessarar myndar. Hálfu stjörnuna fær hún fyrir frábæra myndatöku, en alls ekki meira en það.
2/10

Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Framleiðandi
Warner Bros. Pictures
Vefsíða:
Aldur USA:
R
VHS:
25. ágúst 2003