Aðalleikarar
Leikstjórn
Þessi líka fína endurgerð hinnar klassísku spennumyndar Peckinpah, en hér hefur lítillega verið bætt við söguna, og er það vel. Þau hjónin - fyrrverandi - Alec Baldwin og ÓSKARSVERÐLAUNALEIKKONAN Kim Basinger eru hér í hlutverkum McCoyhjónanna sem hjónin Steve McQueen og Ali McGraw léku 22 árum áður. Þau hjónin, ásamt fleirum, taka að sér að ræna veðhlaupabraut fyrir stórlaxinn Jack Benyon, sem er leikinn af James Woods. Að sjálfsögðu endar það allt í tómu tjóni, morðum, barsmíðum og limlestingum og ekki orð um það meir.