Major League: Back to the Minors

Major League: Back to the Minors (1998)

Major League 3

"They're Just Nine Players Short of a Dream Team"

1 klst 40 mín1998

Gus Cantrell, sem er kastari í hafnabolta í neðri deild, ætlar að leggja hanskann á hilluna, en þá ræður Roger hann til að stjórna liði...

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

2 einkunnir á Kvikmyndir.is

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →

Söguþráður

Gus Cantrell, sem er kastari í hafnabolta í neðri deild, ætlar að leggja hanskann á hilluna, en þá ræður Roger hann til að stjórna liði South Carolina Buzz, sem er neðri deildar lið Twins AAA. Markmið Gus er að gera alvöru lið úr misjöfnum efniviði, leikmönnum eins og ballettdansara sem gerðist hafnaboltaleikmaður, Lance, "Lance the Dance" Pere, Frank "Pops" Morgan, Rube Baker, Taka Tanaka, Pedro Cerrano, Hog Ellis, og hinum hittna Billy "Downtown" Anderson, og Carlton "Doc" Windgate, sem kastar hægasta bolta í atvinnudeild í hafnabolta. Gus endar með því að lenda upp á kant við Leonard Huff, snobbaðan og sjálfumglaðan stjórnanda the Twins. Kvöld eitt í Minnesota, þá eru Gus og kærasta hans, Maggie Reynolds, að fá sér kvöldverð á veitingahúsi ásamt Roger og Huff, og þar skorar Huff á Gus að spila leik á milli Buzz og Twins, og síðan byrja þeir Gus og Huff að rífast og þetta endar með því að Gus tekur áskoruninni. Leikurinn mun fara fram á Hubert H. Humphrey Metrodome í Minnesota. The Twins taka fljótt forystu, 3 - 0, en Billy nær að hlaupa heilan hring ( home run ) og jafnar leikinn í 3 - 3 í 8. leikhluta. Undir lok leiksins eiga Buzz möguleika á að sigra en þá kveikir Huff á flóðljósum vallarins svo að leikurinn endi með jafntefli, frekar en að Buzz nái að vinna, en fjölmiðlar segja samt sem áður eftir leikinn að Buzz hafi valtað yfir Twins. Nú vill Huff ráða Billy til sín, þó að Billy sé ekki tilbúinn til þess ennþá. Billy ákveður samt að þekkjast boðið, og svíkja þar með Gus. Án Billy, þá byrja Buzz að tapa á nýjan leik, en Billy gengur á hinn bóginn ekki nógu vel hjá Twins. Gus tekst að ná Buzz aftur á sigurbraut og Twins skila Billy aftur til Buzz, og þar kennir Gus honum nýja tækni. Gus stýrir nú Buzz til sigurs í deildinni og síðan skorar hann á Huff að spila annan leik við Twins. Hann stingur upp á því að þeir gefi hvorum öðrum árslaun sín ef lið þeirra tapa, og að Gus megi taka við þjálfun Twins ef hann nær að vinna. Huff tekur áskoruninni og fer með Twins til Suður Karólínu til að spila við Buzz. Nú er Buzz ákveðið í að klára leikinn og sigra Twins.

Svipaðar myndir

Major League II
Major League II
1994·IMDb 5.7
Með Corbin Bernsen og Dennis Haysbert
Einkunn
Major League
Major League
1989·IMDb 7.3
Með Corbin Bernsen og Dennis Haysbert
Einkunn
Dick
Dick
1999·IMDb 6.3
Líka gaman
Einkunn
The Match
The Match
1999·IMDb 6.2
Líka gaman
Einkunn
Celtic Pride
Celtic Pride
1996·IMDb 5.3
Líka gaman, íþróttir
Einkunn
Next Friday
Next Friday
2000·IMDb 6.2
Líka gaman
Einkunn
Fever Pitch
Fever Pitch
1997·IMDb 6.6
Líka gaman
Einkunn

Myndbönd

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

John Warren
John WarrenLeikstjóri

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

Framleiðendur

Morgan Creek EntertainmentUS