Pecker
1998
Fannst ekki á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 10. júní 1999
He never realized how far 35 millimeters would take him.
87 MÍNEnska
52% Critics 66
/100 Ungur maður að nafni Pecker, sem vinnur á samlokustað á daginn, tekur ljósmyndir af skrýtinni fjölskyldu sinni, klikkuðum íbúum Baltimore borgar, hinum og þessum stöðum og jafnvel hlutum hér og þar í borginni. Dag einn kemur listaverkasali frá New York, Rorey Wheeler inn á samlokustaðinn þar sem stendur yfir sýning á nokkrum verka Pecker, kaupir eina mynd... Lesa meira
Ungur maður að nafni Pecker, sem vinnur á samlokustað á daginn, tekur ljósmyndir af skrýtinni fjölskyldu sinni, klikkuðum íbúum Baltimore borgar, hinum og þessum stöðum og jafnvel hlutum hér og þar í borginni. Dag einn kemur listaverkasali frá New York, Rorey Wheeler inn á samlokustaðinn þar sem stendur yfir sýning á nokkrum verka Pecker, kaupir eina mynd og býður honum, kærustunni Shelley, starfsmanni í þvottahúsi, sameiginlegum vini/þjófi Matt, foreldrunum Jimmy og Joyce og baslandi bareiganda og sölukonu í fatabúð, dótturinni Tina sem vinnur á nektardansstað fyrir samkynhneigða, hinni sykur-óðu dóttur Chrissy, og hinni trúuðu ömmu fjölskyldunnar “Memama” og samlokukokki, að koma í listagallerí í New York. Á svipstundu verður Pecker heitasti listamaður landsins. Til allrar óhamingju, þá verða vandræði heima við. Margir af þeim sem Pecker hefur myndað verða hneykslaðir og fara hjá sér vegna myndanna og Pecker þarf að ræða málin við Shelley og fá fólkið til að sjá það góða við ljósmyndirnar. ... minna