Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Rosaleg
Chinatown segir í stuttu máli frá spæjaranum J.J. Gittes sem að sér lang ofast um það að upplýsa framhjálhald manna fyrir konum þeirra gegn miklu fé. En það er eitt sinn að kona kemur inn og biður hann um að taka að sér mál sitt að uppljóstra að maður sinn Mr. Mulwray sé að halda áfram. Hann gerir þetta eftir bestu getu og tekur myndir af honum með ungri stelpu til að sanna mál sitt. Svo kemur í ljós að það var ekkert Mrs. Mulwray sem kom til hans heldur konan Ida sem var ráðin af manni til að leika hana. Skömmu seinna deyr Mr. Mulwray sem flækir málið enn meira og hin rétta Mrs. Mulwray ræður hann til að upplýsa málið. Málið er mun flóknara heldur en áhorfandi gerir sér grein fyrir og kemur hver uppljóstrunin á fætur annarri manni á óvart. En spurningin er hver drap Mr. Mulwray?
Handritið er ofboðslega vel skrifað og átti vel skilið óskarinn sem fékkst fyrir það. Roman Polanski er í gæðaklassa leikstjóra og stendur vel undir væntinum í Chinatown.

Chinatown er alveg ágætis skemmtun með Jack Nicholson í hlutverki spæjara á fjórða áratug síðustu aldar. Ég átti ágæta stund yfir henni en mér finnst hún ekki eiga allt þetta lof skilið. Hún er frekar kraftlítil og þó að tónlistin sé fín þá bjargar það ekki þessari slappri stemningu. Söguþráðurinn er að vísu ekki af verri endanum en Chinatown er samt ekki eins sniðug og hún vill vera þó að hún sé alls ekki heimsk. Það sem tollir henni saman og gerir hana horfanlega og nokkuð skemmtilega er mjög góður leikur hjá Jack Nicholson og sterk leikstjórn hjá Roman Polanski. Must fyrir spæjaramyndaunnendur en ekki búast við neinu rosalegu. Einkunn: tvær og hálf stjarna.
Ógleymanleg atriði einkenna þetta stórkostlega meistarastykki. Myndin hlaut á sínum tíma 11 óskarsverðlaunatilnefningar, og það ekki af ástæðulausu ( taka skal fram að myndin hlaut þó aðeins 1 stykki Óskar ). Chinatown segir sögu einkaspæjarans Jake Gittes sem er blekktur af konu sem þykist vera eiginkona þekkts manns ( Hollis Mulwray-Darrel Zwerling ) í LA. Gittes tekur að sér mál um að njósna um þennan mann ( Hollis ). Smám saman leiðist þetta út í spillingum morð, landeignir og aðra skemmtilega hluti. Chinatown er ein af þeim fáu Film-Noir myndum sem eru í lit. Sagt er að leikstjórinn ( Roman Polanski ) hafi viljað prufa einhvað nýtt og líka ( þótt fáranlegt sé ) að svart/hvítar myndir voru út úr tísku á tímabilinu sem myndin var gerð.Myndin er stútfull af plot-tvistum og þarfnast 100 prósent athygli manns allan tímann. Nú, leikurinn er stórfenglegur. Jack Nicholson fór á kostum sem Jake Gittes og var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir vikið. Faye Dunaway fór einnig á kostum og var einnig tilnefnd til óskarsverðlauna. Svo má ekki gleyma John Huston sem fór á kostum sem Noah Cross. Leikstjóri myndarinnar, Roman Polanski gerði hér sína bestu mynd og var eins og fyrrnefndir leikarar einnig tilnefndur til óskarsverðlauna ( fyrir leikstjórn ). Andrúmsloftið í myndinni er magnað, manni virkilega líður eins og maar sé staddur í myndinni. Allt í allt er þetta stórkostlegt meistarastykki sem á allt gott skilið. Tvímælalaust ein af bestu myndum allra tíma!