Hrollvekjuveisla á Hrekkjavöku í Sambíóunum

Í tilefni Hrekkjavökunnar í næstu viku ætla Sambíóin Egilshöll að sýna klassískar hrollvekjur í bland við nýrri dagana 30. – 31. október nk.

Um er að ræða sex hryllingsmyndir þessa tvo daga og verður hver mynd sýnd einu sinni á dag.

Í tilkynningu frá SAM bíóunum segir að ef þú þorir að láta hræða úr þér líftóruna þessa hrekkjavökuna er Sambíóin Egilshöll staðurinn til þess.

Myndirnar eru eftirfarandi:

28 Days Later

28 Days Later 2002

Drama, Hrollvekja, Spennutryllir · 113 mín16 áraIMDb 7.5

Dýraverndunar- og aðgerðasinnar ráðast inn í rannsóknarstofu og ætla sér að frelsa simpansa-apa sem eru tilraunadýr, en eru smitaðir af vírus sem veldur brjálæði. Hinir barnslegu aðgerðasinnar hundsa bænir vísindamanna…

Gefa einkunn

The Exorcist

The Exorcist 1973

Drama, Hrollvekja · 122 mín16 áraIMDb 8.1

Þegar dularfull vera tekur sér bólfestu í ungri stúlku leitar móðir hennar til tveggja kaþólskra presta til að bjarga lífi hennar.

Gefa einkunn

The Conjuring

The Conjuring 2013

Hrollvekja, Spennutryllir · 112 mín16 áraIMDb 7.5

Rannsakendur sem sérhæfa sig í yfirskilvitlegum atburðum hjálpa fjölskyldu sem kemst í kynni við illar verur. Sagan gerist árið 1971. Caroly og Roger Parren flytja ásamt fjölskyldu sinni í niðurnítt sveitabýli á Rhode…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

The Exorcist: Believer

The Exorcist: Believer 2023

Hrollvekja · 111 mín16 áraIMDb 4.8

Framhald The Exorcist frá árinu 1973 sem fjallaði um 12 ára stúlku sem var andsetin af djöfullegum krafti, sem knúði móður hennar til að leita hjálpar hjá tveimur prestum. Hér er það faðir andsetins barns sem leitar…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

The Nun 2

The Nun 2 2023

Hrollvekja, Spennutryllir, Ráðgáta · 110 mín16 áraIMDb 5.6

Sagan gerist í Frakklandi árið 1956. Prestur er myrtur og vonskan breiðist út. Systir Irene þarf rétt einu sinni að horfast í augu við hina illgjörnu Valak, djöflanunnuna.

Gefa einkunn

Last Voyage of the Demeter

Last Voyage of the Demeter 2023

Hrollvekja · 118 mín16 áraIMDb 6.1

Myndin er byggð á einum kafla, The Captain´s Log, úr sígildri sögu Bram Stoker frá 1897, Dracula. Sagan gerist um borð í rússnesku skonnortunni Demeter sem var notuð til að flytja leynilegan farm - tuttugu og fjóra…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Sýningartímar verða aðgengilegir hér á kvikmyndir.is og á sambio.is