Margar Hollywood-stjörnur hófu feril sinn í hryllingsmyndum þar sem þær þurftu að takast á við alls kyns morðingja og ófrýnilegar verur.
Í tilefni af hrekkjavökunni er hér listi yfir fimm stjörnur sem áttu þátt í að fá hár kvikmyndaunnenda til að rísa í hinum ýmsu hryllingsmyndum:
Johnny Depp – A Nightmare on Elm Street (1984)
Fyrsta stóra kvikmyndahlutverk Johnny Depp var sem Glen Lantz í A Nightmare on Elm Street.
George Clooney – Return to Horror High (1987)
George Clooney lék Oliver í Return to Horror High. Myndin fjallaði um kvikmyndatökulið sem reyndi að komast að því hver eða hvað væri á bak við dularfull morð í Crippen-menntaskólanum.
Jennifer Aniston – Leprechaun (1993)
Vinurinn fyrrverandi lék í grínhrollinum Leprechaun þegar hún var að hefja sinn feril. Eftir það tóku við tíu ár sem Rachel Green í Friends.
Leonardo DiCaprio – Critters 3 (1993)
Fyrsta hlutverk Leonardo DiCaprio á hvíta tjaldinu var í Critters 3. Þar lék hann Josh, stjúpson spillts landeiganda, sem læsist fyrir slysni inni í herbergi fullu af Critters-verunum ófrýnilegu. Aðeins fjórum árum síðar lék DiCaprio í Romeo and Juliet og svo var röðin komin að Titanic.
Katherine Heigl – Bride of Chucky (1998)
Löngu áður en Katherine Heigl lék í Grey´s Anatomy fór hún með hlutverk Jade í Bride of Chucky. Jade og kærastinn hennar Jesse voru sérstaklega valin af Chucky og Tiffany sem ætluðu að taka yfir líkama þeirra.
Matthew McConaughey – The Return of the Texas Chainsaw Massacre (1994)
Matthew McConaughey lék Vilmer í The Return of the Texas Chainsaw Massacre. Renee Zellweger lék einnig í myndinni. Tveimur árum síðar hreppti McConaughey stórt hlutverk í A Time to Kill.
Sjá má lengri lista yfir Hollywood-stjörnur í hryllingsmyndum á vefsíðu Mirror.