Glaumur og gleði á Föstudagspartísýningum

Bíó Paradís við Hverfisgötu býður á hverjum föstudegi kl. 21 upp á sérvaldar sígildar kvikmyndir sem sýndar eru á sérstökum Föstudagspartísýningum.

Eins og segir á vef bíósins ræður glaumur og gleði þar ríkjum. „Það er einfaldlega ekki til betri leið til að starta helginni með vinum og vinkonum en að upplifa nostalgíumyndir í góðra vina hópi í trylltum fíling. Barinn/sjoppan er alltaf stútfull af sætindum og partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!,“ segir á vefnum um sýningarnar.

Í maí eru fjórar Föstudagspartísýningar í boði en þær eru eftirfarandi:

5. maí:

„Anayway, How´s Your Sex life?“

The Room

The Room 2003

Drama · 99 mín6 áraIMDb 3.6

Myndin fjallar um Johnny, leikinn af leikstjóra, handritshöfundi og framleiðanda myndarinnar, Tommy Wiseau, og brösugt samband hans við kærustu sína, Lisu, og besta vin sinn Mark (ó hæ! Mark), sem færir hann að lokum á…

Gefa einkunn

12. maí:

„Samband þeirra er, frá öllum hliðum séð …“

Með allt á hreinu

Með allt á hreinu 1982

Gaman, Söngleikur, Íslenskt · 99 mínÖllum leyfðIMDb 7.5

Tónlistar- og grínmyndin Með allt á hreinu fjallar um tvær hljómsveitir, Stuðmenn og Gærurnar (réttu nafni Grýlurnar), ástir og afbrýði meðlima þeirra og spaugilegar uppákomur í ferðalagi þeirra um Ísland.

Gefa einkunn

19. maí:

„I´m Not Josie Grossie anymore“

Never Been Kissed

Never Been Kissed 1999

Gaman, Rómantík, Drama · 107 mínÖllum leyfðIMDb 6.0

Josie Geller, 25 ára, vinnur sem yfirlesari hjá dagblaðinu Chicago Sun Times. Hún er mjög góð í því sem hún gerir, en þráir samt að verða blaðamaður á blaðinu, sem er mun meira krefjandi starf. Hún fær langþráð tækifæri…

Horfa:Disney+
Gefa einkunn

26. maí:

„Drop that stereo before I blow your goddamn nuts off, asshole“

Police Academy

Police Academy 1984

Gaman, Glæpa · 96 mín12 áraIMDb 6.7

Hópur góðhjartaðra en algjörlegra óhæfra aðila úr ýmsum áttum er skráður í lögregluskólann, þar sem mjög brýnt er að fjölga menntuðum lögreglumönnum á götunum. En kennararnir munu ekki sætta sig við neina stæla.

Gefa einkunn