Fyrsta stiklan er komin út fyrir nýjustu mynd danska leikstjórans Lars Von Trier, Nymphomaniac, sem útleggst á íslensku; Sjúklega vergjörn kona.
Stiklan er eins og við er að búast, full af kynlífsatriðum og nekt, en við höfum áður birt stutt atriði úr myndinni hér á kvikmyndir.is.
Í helstu hlutverkum í myndinni eru Charlotte Gainsbourg, sem leikur hina vergjörnu aðalpersónu, Shia LaBeouf, Uma Thurman, Willem Dafoe, Jamie Bell, Stellan Skarsgard, Stacy Martin, Christian Slater og Udo Kier.
Myndin verður frumsýnd snemma á næsta ári, 2014.
Sjáðu stikluna hér fyrir neðan: