Vefmiðillinn The Hollywood Reporter segir frá því í dag að Birdman leikarinn Michael Keaton eigi í viðræðum um að taka að sér hlutverk í stórmyndinni, og King Kong- skrímslamyndinni, Skull Island.
Ef samningar nást þá mun Keaton slást í lið með þeim J.K. Simmons og Tom Hiddleston, en myndin fjallar um hóp vísindamanna sem leitar að heimili King Kong.
Leikstjóri er Jordan Vogt-Roberts.
Frumsýna á myndina þann 10. mars, 2017.