Bandaríski grínþátturinn Saturday Night Live var sýndur síðasta laugardag eins og vanalega á sjónvarpsstöðinni NBC.
Christoph Waltz var gestgjafi þáttarins og fór hamförum sem Jesús í einu atriðinu. Þar sést hann slátra Júdasi, Rómverjum og eiginlega öllu sem á vegi hans verður.
Í atriðinu segir að Jesús sé snúinn aftur og prédikar allt nema fyrirgefningu.
Atriðið er skírskotun í þekktustu myndir Waltz, þær Inglourious Basterds og Django Unchained.
Hér má sjá atriðið: