Fimm mynda þáttur af Bíóbæ

Í þessum fimm mynda þætti af kvikmyndaþættinum Bíóbæ, sem sýndur er vikulega á sjónvarpsstöðinni Hringbraut, er rætt um nýju J-Lo myndina Shotgun Wedding. Þar er stiklan með hálfgerðri fléttu útaf fyrir sig!

Shotgun Wedding

Shotgun Wedding 2022

Spenna, Gaman, Rómantík · 100 mín12 áraIMDb 5.5

Glæpamenn trufla brúðkaup sem par ætlar að halda á draumaáfangastaðnum. Á sama tíma og þau þurfa að bjarga fjölskyldunni úr bráðri hættu enduruppgötva þau afhverju þau urðu upphaflega ástfangin.

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Árni Gestur.

Svo færum við okkur um set og ræðum írskan vinaslag í kvikmyndinni Banshees of Inisherin sem Gunnar Anton segir að hafi orðið hálf eyðilagður með hálf glataðri bíóferð Árna í Bandaríkjunum.

The Banshees of Inisherin

The Banshees of Inisherin 2022

Gaman, Drama · 114 mín16 áraIMDb 7.6

Tveir aldavinir, Padraic og Colm, lenda í ógöngum þegar annar þeirra ákveður að slíta vinskapnum, sem hefur miklar og sláandi afleiðingar í för með sér fyrir þá báða.

Horfa:Disney+
Gefa einkunn

Stolið búlgörsku þjóðlagi?

Einnig er rætt um myndina hans Carter Burwell; en hverju ætli hann hafi stolið núna? Kannski búlgörsku þjóðlagi?

Svo tekur við heiðarleg spennumynd með brytanum Gerald Butler í myndinni Plane. Hver hefði leikið þetta hlutverk árið 1997? Þarf hann að reka umboðsmanninn sinn? Er samt ekki allt í lagi að það komi svona heiðarlegar myndir út líka? Þurfa allar myndir að vinna Óskarinn?

Plane

Plane 2023

Spenna, Spennutryllir · 107 mín16 áraIMDb 6.5

Flugmaðurinn Brodie Torrance bjargar farþegum sínum frá þrumuveðri með því að nauðlenda á eyju þar sem stríð geysar - og kemst þá að því að lendingin var aðeins upphafið að óförunum. Þegar flestir farþegarnir eru teknir…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Hryllingsmyndahorn

Þá er komið að hryllingsmyndahorninu og að þessu sinni eru það Speak No Evil og M3gan sem verða frumsýndar. Það er greinilega nóg um að vera í þessum stútfulla þætti.

M3GAN

M3GAN 2023

Hrollvekja, Spennutryllir, Vísindaskáldskapur · 102 mín16 áraIMDb 6.3

Vélmennasmiður hjá leikfangafyrirtæki smíðar dúkku sem lítur út eins og alvöru stúlka, sem smátt og smátt fer að lifa sínu eigin lífi.

Gefa einkunn

Speak No Evil

Speak No Evil 2022

Drama, Hrollvekja, Spennutryllir · 97 mín16 áraIMDb 6.7

Hvað gerist þegar dönsk fjölskylda ákveður að taka óvæntu tilboði? Heimboði til heimalands vingjarnlegs fjölskyldufólks sem þau hitta í sumarfríi?

Horfa:SÝN
Gefa einkunn