Bruce Willis er hættur við að leika í nýjustu kvikmynd Woody Allen vegna þess að tökudagarnir rákust á við fyrsta leikrit Willis á Broadway.
Hann fer með hlutverk rithöfundarins Paul Sheldon í verki byggðu á spennusögu Stephen King, Misery.
Willis átti að leika á móti Blake Lively, Parker Posey, Kristen Stewart, Jesse Eisenberg og Corey Stoll í mynd Woody Allen.
Leikritið Misery verður frumsýnt í New York 22. október.
Laurie Metcalf, sem vann þrenn Emmy-verðlaun fyrir hlutverk sitt í Rosanne, mun leika á móti Willis.